Handsmíðaður kajak settur á flot í Reykjavíkurtjörn 14. nóvember 2012 21:03 Kajakinn var settur á flot í Reykjavíkurtjörn. MYND/SVEINN ALFREÐSSON
Forláta kajak, handsmíðaður frá grunni, var sjósettur í Reykjavíkurtjörn fyrr í kvöld við mikinn fögnuð vegfarenda. Það er fjölgreinastarf Lindakirkju sem stendur að verkefninu en það er félagsskapur ungra pilta sem njóta þess að vinna að sérstökum og óhefðbundnum verkefnum. Sveinn Alfreðsson er annar skipuleggjenda verkefnisins. Hann segir meginmarkmið verkefnisins vera að skipuleggja spennandi verkefni fyrir unga drengi. „Við vildum mæta þessum krökkum," sagði Sveinn í samtali við Vísi. „Þessir piltar eru alveg frábærir, afar handlagnir og margt til listanna lagt."Piltarnir í fjölgreinastarfi Lindakirkju.MYND/SVEINN ALFREÐSSONFyrir nokkru var ákveðið að leggjast í smíði á kajak. Reyndir handverksmenn veittu piltunum dyggan stuðning enda þurfti sérfræðing til að sýna þeim hvernig réttast væri að vinna með trefjaplastið. Stóra stundin rann síðan upp í kvöld. Liðsmenn fjölgreinastarfsins burðuðust þá með kajakinn í rigningunni að Reykjavíkurtjörn. Báturinn var settur á flot og piltarnir sigldu á tjörninni. Sveinn segir uppátækið hafa vakið mikla lukku meðal vegfarenda. „Strákarnir voru afar ánægðir með þetta," segir Sveinn. „Það er mikill hugur í þessum strákum. Síðan stóðu þeir sig mjög vel í róðrinum." Sjósetningin í dag markar þó ekki endalok fjölgreinastarfsins, því fer fjarri. „Við söfnum nú í ferðasjóð og stefnan er tekin á Danmörk. Þetta verður mikil ævintýraferð, ætlum að heimsækja Tívolíið og Lególand." Næsta verkefni á dagskrá er síðan að rafsjóða flugeldastanda fyrir áramótin. Þar á eftir verður Lindakirkja sjálf endursköpuð úr piparkökudeigi.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira