Innlent

Hneyksli í Svíþjóð

Erik Almqvist og skjáskot úr myndbandinu.
Erik Almqvist og skjáskot úr myndbandinu. SAMSETT MYND/AFP/EXPRESSEN
Kent Ekeroth, þingmaður Sænska demókrataflokksins, hefur tekið sér leyfi frá störfum eftir að myndband var birt sem sýnir hann ásamt tveimur öðrum þingmönnum hafa niðrandi ummæli um ölvaðan mann og konu sem reyndi að stilla til friðar milli þeirra.

„Ég er hreint ekki stoltur af því sem gerðist," sagði Ekeroth í samtali við fréttamiðilinn TT í dag. „Þetta er eitthvað sem ég skammast mín fyrir."

Í myndskeiðinu má sjá þingmennina, sem virðast vera í heldur annarlegu ástandi, rífast við ölvaðan mann. Þetta eru Ekeroth, Christian Westling og Erik Almqvist. Sá síðastnefndi hafði verið með kynþáttaníð í garð mannsins.

Á einum tímapunkti halda þeir járnrörum á lofti og kalla að manninum. Því næst ber unga konu að garði. Hún reynir að stilla til friðar og reynir að grípa í farsíma Ekeroths. Þingmaðurinn ýtir konunni þá frá sér.

Þegar lögreglan kemur á vettvang eru járnrörin látin falla og félagarnir láta sem ekkert sé.



Það var sænski miðillinn Expressen sem fyrst birti myndbandið en það er frá árinu 2010. Síðustu daga hafa nokkur önnur myndskeið litið dagsins ljós.

Það var Ekeroth sjálfur sem var bakvið myndavélina í nýjasta myndskeiðinu. Ekki er vitað hvernig það komst í hendur Expressen.

„Þessi hegðun sæmir ekki þingmanni," sagði Ekeroth. „Þegar ég sé myndbandið núna þá er augljóst að hegðun mín var ólíðandi."

Kollegi Ekeroths, Erik almqvist, hefur að sama skapi látið að trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Þá hefur leiðtogi Sænska demókrataflokksins hvatt Almqvist til að láta alfarið af þingmennsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×