Innlent

Djúpið ein víðförlasta íslenska kvikmynd allra tíma

Útlit er fyrir að kvikmyndin Djúpið verði ein víðförlasta íslenska mynd allra tíma. Búið er að selja sýningarétt á kvikmyndinni til fjölmargra landa.

Evrópulöndin hafa nær öll tryggt sér sýningarétt á Djúpinu en kvikmyndin verður einnig tekin til sýninga í Japan, Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Suður-Ameríku. Sýningar hefjast vestanhafs á næsta ári. Það er dreifingarfyrirtækið Focus Features sem dreifir Djúpinu.

Agnes Johansen, framleiðandi, segir árangur kvikmyndarinnar frábæran og í raun samspil nokkurra þátta.

„Okkur tókst að vekja athygli á Djúpinu á kvikmyndahátíðinni í Toronto í byrjun september," segir Agnes. „Þegar maður fer inn á svona hátíðir skiptir sköpum að fá gott start og það virðist hafa tekist."

Þá segir hún að ótrúleg velgengni Baltasars Kormáks, leikstjóra, hafi einnig hjálpað til.

„Baltasar verður sífellt þekktari. Contraband gekk vel á heimsvísu og því komu margir til að skoða nýjustu myndina hans."

Baltasar er núna í Bandaríkjunum og leggur lokahönd á kvikmyndina Two Guns, sem skartar stórleikurunum Mark Wahlberg og Denzel Washington í aðalhlutverkum.

Þá hefur Baltasar einnig sinnt kynningarstarfi fyrir Óskarsverðlaunin en þau fara fram í febrúar. Djúpið er framlag Íslands til verðlaunanna í ár.

„Samkeppnin er hörð. Það eru rúmlega 70 myndir sem taka þátt í forvalinu. Snemma í janúar verður tilkynnt hvaða myndir komust áfram og stuttu eftir það kemur í ljós hvaða fimm myndir verða tilnefndar."

Hægt er að sjá sýnishorn úr Djúpinu hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×