Innlent

Ölvaður ökumaður á áttræðisaldri olli miklu tjóni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umferðarslys varð á gatnamótum Hringbrautar og Nauthólsvegar um hálfsexleytið í gær þegar amerískum sendibíl sem breytt hefur verið í húsbíl, var ekið á miklum hraða vestur Hringbraut.

Ökumaður sendibílsins missti stjórn á honum og fór bifreiðin yfir á rein fyrir umferð úr gagnstæðri átt. Þar hafnaði hann á þremur bílum. Nota þurfti tækjabíl slökkviliðs til að klippa ökumann úr einni bifreiðinni. Sá var nokkuð slasaður en aðrir með minni áverka. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir um meiðsl.

Ökumaður sendibifreiðarinnar, karlmaður á áttræðisaldri, var ölvaður og hafði verið sviptur ökuréttindum. Allar bifreiðarnar voru mikið skemmdar og fluttar á brott með dráttarbifreiðum. Tjón varð á umferðarmannvirkjum á gatnamótunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×