Innlent

Útvarpsmanni dæmdar bætur frá ritstjóra

Útgáfufélag Viðskiptablaðsins, Myllusetur, var í morgun sýknað af skaðabótakröfu Péturs Gunnlaugssonar, útvarpsmanns á Útvarpi Sögu, vegna ummæla í Viðskiptablaðinu og á VB.is. Björgvin Guðmundsson, ritstjóri blaðsins, var hins vegar dæmdur til að greiða Pétri 300 þúsund krónur í bætur. Kröfu Péturs, um að Björgvin yrði dæmdur til að sæta refsingu, var hins vegar hafnað.

Pétur Gunnlaugsson höfðaði mál vegna ærumeiðandi ummæla blaðsins í sinn garð. Pétur taldi að því hefði verið haldið fram í blaðinu og vefmiðli þess að hann hefði beitt viðmælanda sinn, Björn Val Gíslason þingmann, líkamlegu ofbeldi í beinni útsendingu.

Tvenn ummæli í blaðinu og á vefnum voru ómerkt. Annars vegar ummælin „Þessu og fleiru reiddist Pétur mjög, henti öllu af borðinu hjá sér í beinni útsendingu og reif í Björn Val." sem birt voru á blaðsíðu 20 í Viðskiptablaðinu 19. tbl. 18 árgangi. Sömu ummæli sem birtust á vef Viðskiptablaðsins voru líka ómerkt og jafnframt ummælin ummælin „Lenti í handalögmálum í útvarpsviðtali".

Auk þess að greiða Pétri 300 þúsund krónur í bætur þarf hann að greiða honum 700 þúsund krónur í málskostnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×