"Með verri veðrum sem hafa komið“ 2. nóvember 2012 13:37 Hér sést hvernig tréð við Miðstræti rifnaði upp með rótum. Mynd/ Páll V. Bjarnason „
Það eru svona 35 metrar á sekúndu í mestu vinhviðunum í Reykjavík og við löbbum tvo metra á sekúndu - svo þú getur rétt ímyndað þér. Það er bara snælduvitlaust veður," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, veðurfræðingur. Mikið óveður gengur nú yfir landið og hafa mestu vindhviður farið upp í 55 metra á sekúndu. Í Reykjavík mælast mestu vindhviður 35 metrar á sekúndu en meðal vindhraðinn er á milli 20 og 30 vindstiga. „Fárviðri er efsta stig, það eru 33 metrar á sekúndu og stormur er 21 metri á sekúndu," segir Siggi. „Þetta er náttúrulega með verri veðrum sem hafa komið. Því er ekki að leyna kortin eru búin að vera sérdeilis ljót fyrir þennan dag og á morgun. Það er allt landið lagt undir. Á suðvesturhorninu er snjólaust, en til dæmis í Öræfasveitum er snarvitlaust veður og mikil snjókoma. Þar eru vindhviður upp í 50 metra á sekúndu," segir Siggi. Almannavarnir hvöttu foreldra til að ná í börnin sín í skólann í dag, og tekur Siggi undir það. „Þú stendur ekki í svona veðri og þá allra síst börn. Ég myndi huga að því, það er allur dagurinn sem fer í þetta." Spurður hvort að hægt sé að bera óveðrið hér á landi saman við fellibylinn Sandy, sem gekk yfir austurströnd Bandaríkjanna í vikunni, segir hann það ekki hægt. „Hér eru meðalvindhviðurnar 20 til 30 metrar á sekúndu en í Sandy voru vindhviðurnar um 40 til 42 sekúndur. En það má segja að eðli og orsakir séu allt aðrar í þessum tveimur verðrum."
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira