Innlent

Gámaflug á Eimskipssvæðinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gámar fuku um koll á gámasvæði Eimskiips í morgun. Einn af lesendum Vísis, Guðmundur Sigurðsson, var á staðnum og sá að einn gámurinn var farinn að færast úr stað. Hann setti svo upptöku í gang og náði þessum myndum. Guðmundur segir að sex til sjö gámar hafi fokið í morgun.

Eimskip sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem fram kemur að afgreiðsla Sundahafnar og Vöruhótels verður lokuð í dag vegna veðurs og verður ekki opnað aftur fyrr en útséð er með um veðurspá seinna í dag.

Eins má búast við röskun á áætlunarferðum Eimskips Flytjanda víðsvegar um landið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×