Lífið

Systurnar verja sína menn

MYND / US WEEKLY
Elskhugar Kardashian-systranna þurfa að þola sinn skerf af sögusögnum enda eru Kim, Khloe og Kourtney ansi frægar vestan hafs.

Heitustu sögurnar eru að Khloe og Lamar Odom séu að skilja, að Kim sé að flýta sér að giftast Kanye West og verða ólétt og að samband Kourtney og Scott Disick sé í molum.

Systurnar eru greinilega þreyttar á þessum sögum og verja sína menn í forsíðuviðtali við tímaritið Us Weekly.

"Það er svo leiðinlegt þegar svona lygar eru búnar til. Þær særa," segir Khloe. Kim tekur í sama streng og segist ekkert vera að flýta sér aftur upp að altarinu.

"Ég er hamingjusöm með lífið eins og það er."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.