Innlent

Glæsileg tónlistarveisla í vonlausu veðri

Erla Hlynsdóttir skrifar
Frá Listasafni Reykjavíkur í gær.
Frá Listasafni Reykjavíkur í gær. Valgarður Gíslason
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves gekk vel fyrir sig í gær, þrátt fyrir veðurofsann. Ausandi rigning var yfir alla hátíðina í fyrra.

Iceland Airwaves hófst á miðvikudag en þetta er stærsta tónlistarhátíð sem haldin er hér á landi. Vegna veðurs ákváðu forsvarsmenn hátíðiarinnar að aka tónleikagestum milli tónleikastaða í gærkvöldi. Þannig gengu strætisvagnar reglulega milli Hörpu og Listasafnsins til klukkan eitt í nótt.

„Þetta gekk bara mjög vel fyrir sig. Það var vissulega slæmt veður í gær og það en það lægði undir kvöld. Það í raun ágætt veður milli klukkan átta og eitt. Síðan hvessti aftur. En það var vel mætt og alveg ótrúleg góð stemning," segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri hátíðarinnar.

Hátíðin var á síðasta hári haldin um miðjan október en hún var nú færð tveimur vikum lengra inn í veturinn. Grímur segir ólíklegt að tímasetningin verði endurskoðuð vegna veðurs.

„Nei, ég held ekki. Í fyrra var hörmulegt veður á hátíðinni, mesta rigning í manna minnum, þrumur og eldingar. Á þessu tíma í fyrra var veðrið frábært. Það er allra veðra von á Íslandi."

Hátíðin er nú farin að styttast í annan endann og lýkur dagskránni á morgun.

„Það er mjög stór dagur í dag, margar stórar hljómsveitir koma fram í dag. Síðan er náttúrulega rúsínan í pylsuendanum á morgun þegar Sigurrós spilar í Hörpu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×