Innlent

"Það er farið að ganga mjög á matarbirgðir“

Frá Reyðarfirði í gær. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Frá Reyðarfirði í gær. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
„Við förum ekkert og gerum ekkert," segir Kristján Kristjánsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði. „Það er farið að ganga mjög á matarbirgðir."

Ófært hefur verið til Seyðisfjarðar síðustu daga eða allt frá því snjó byrjaði að kynja niður á fimmtudaginn. En þrátt fyrir snjófergi hafa útköllin verið fá.

„Það er einfaldlega af því að fólk heldur sig innandyra," segir Kristján. „Þetta hefur sloppið ágætlega, fólk er ekkert að þvælast að óþörfu."

Kristján hefur áhyggjur af matarbirgðum bæjarins.

„Á fimmtudaginn var að verða brauðlaust og eitthvað er nú til af mjólk. En við erum að moka götur svo fólk komist leiða sinna. Það er ekkert annað í stöðunni en að bíða."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×