Innlent

Birgitta lögð inn á sjúkrahús

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinna, lenti í andnauð og var flutt með sjúkrabíl á spítala á laugardaginn. Hún er nú inniliggjandi á lungnadeild, í allskonar prófunum.

„Allt troðfullt og ég bý á ganginum. Eins og vitað er þá þolir heilbrigðiskerfið ekki meira og ég mun halda áfram minni áralöngu baráttu fyrir því að við skerðum ekki hlut heilbrigðiskerfisins," segir Birgitta í stöðufærslu sem hún skrifaði um málið á Facebook.

Hún biður alla sína samherja að sýna sér smá umburðarlyndi, því hún þurfi aðeins að minnka álagið á sér og ná heilsu en muni koma aftur til vinnu í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×