Fjölskylda Inga niðurbrotinn vegna ákvörðunar skólayfirvalda Erla Hlynsdóttir skrifar 8. nóvember 2012 12:00 Ingi Kristmanns fær ekki inni í Klettaskóla.
Faðir Inga Kristmanns, sem neitað var um skólavist í Klettaskóla, segir fjölskylduna niðurbrotna. Menntamálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Klettaskóla um að synja Inga Kristmanni, sem er ellefu ára gamall, fatlaður drengur um skólavist. Ingi er með væga þroskahömlun, hreyfiþroskaröskun og ofvirkniröskun. Foreldrar hans sóttu um vist fyrir hann í sérskólanum Klettaskóla í apríl en fengu synjum hálfum mánuði síðar.Þau kærðu málið til menntamálaráðuneytisins sem staðfesti synjunina í gær. Ágúst Kristmanns, faðir Inga, er afar ósáttur. "Við erum náttúrulega mjög döpur yfir því að þau taki þá afstöðu að hann eigi ekki heima í sérskóla og urðum hreinlega niðurbrotin við að lesa rökstuðninginn sem fylgir niðurstöðunni," segir Ágúst Kristmanns. Hann segir þar vera tvennt sem stingi þau mest. Annars vegar er þeim hafnað á þeim forsendum að ekki hafi verið staðið rétt að umsóknarferlinu í upphafi, en þau sóttu sjálf um til skólans í stað þess að sækja um til sveitarfélagsins. "Við vorum að heyra þetta í fyrsta skipti í gær. Svo les menntamálaráðuneytið það út úr greiningu Inga frá 2007 að hann sé ekki fatlaður samkvæmt lögum, sem er mjög skrýtið því hann hefur verið fatlaður frá því hann var þriggja ára," segir Ágúst. Ágúst segir skóla án aðgreiningar ekki virka fyrir son sinn, sem nú er í almennum skóla en fær aðstoð þroskaþjálfa. "Hann er orðinn mjög einangraður félagslega og er löngu hættur að eiga samleið með jafnöldrum sínum í skólakerfinu. það eru stöðug aukin vandamál heima fyrir og hann vill ekki ifara í skólann," segir Ágúst. Foreldrar Inga stefna á að kæra úrskurð ráðuneytisins til umboðsmanns Alþingis. Við ætlum líka að fá betur útlistað hvað er fötlun og hvað er ekki fötlun," segir hann.
Mest lesið Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Innlent Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent 70 prósent landsmanna hlynnt banni Innlent Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Innlent Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Erlent Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Innlent Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Innlent Víðir hefur nú loks tíma fyrir Lunch United Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Níu ráðherrar funda með Höllu Innlent Fleiri fréttir Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Víðir hefur nú loks tíma fyrir Lunch United Samfélagsmiðlabann án fræðslu stoðar lítið Samfélagsmiðlabann nýtur mikils stuðnings og flugeldasalan í fullum gangi Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna 70 prósent landsmanna hlynnt banni Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Tvö handtekin fyrir þjófnað og þrír fyrir sölu og dreifingu Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Sjá meira
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent