Kom heim með gull af alþjóðlegu hnefaleikamóti 9. nóvember 2012 11:02 Valgerður Guðsteinsdóttir hlaut gullverðlaun í sínum flokki á alþjóðlegu hnefaleikamóti sem fór fram á síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON "
Ég saknaði íþróttarinnar og langaði að byrja aftur. Þetta er þriðji veturinn minn hjá Æsi núna," segir Valgerður Guðsteinsdóttir sem hlaut gullverðlaun í sínum þyngdarflokki á ACBC-hnefaleikamótinu sem var haldið í Gautaborg um síðustu helgi. Valgerður hafði æft íþróttina í svolítinn tíma á unglingsárum sínum og ákvað fyrir þremur árum að hefja æfingar að nýju. Hún æfir allt að sex sinnum í viku með sérstökum keppnishópi hjá Hnefaleikastöðinni og var þetta hennar fyrsta alþjóðlega mót. Valgerður keppti í 57 til 60 kílóa senior-flokki og mætti tveimur andstæðingum sem höfðu háð færri en sex bardaga líkt og hún sjálf. "Sú fyrri sem ég keppti á móti var sænsk, en ég er ekki viss hvaðan seinni andstæðingurinn var. Ég mætti bara þeim sem ég átti að mæta og hugsaði ekki meira út í það. Ég vildi gera mitt besta og fannst skipta mestu máli að vera með góða tækni og sýna fallegt box. Ég var ekki að reyna að rota andstæðinginn í fyrsta höggi." Þegar hún er spurð nánar út í tæknilegu hlið íþróttarinnar segir hún: "Tæknin felst í því hvernig þú notar líkamann í höggin. Hreyfanleiki er líka mjög mikilvægur. Ég lærði grunninn minn hjá þjálfara frá Kúbu og hann lagði mikla áherslu á hreyfanleika. Vilhjálmur Hernandez þjálfar mig núna og hann hefur bætt miklu við þekkingu mína og tækni." Að hennar sögn eru þær fáar konurnar sem keppa í hnefaleikum hér á landi og því getur verið erfitt að finna andstæðing til að keppa á móti. "Það er eitt og hálft ár síðan ég keppti síðast því það eru bæði fáar konur sem keppa og langt á milli móta. Það var eitt mót vikuna áður en við fórum út, en þá var engin til að keppa á móti mér. Íþróttin hefur þó orðið vinsælli upp á síðkastið og það hafa komið fram margir nýir og efnilegir einstaklingar," segir Valgerður að lokum.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Sjá meira