Daniel Craig var flottur í Madrid á Spáni um helgina ásamt meðleikurum sínum en nýjasta Bond myndin, Skyfall var frumsýnd þar í landi í gær.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum gerði sjarmatröllið og leikarinn Javier Bardem allt vitlaust á rauða dreglinum og leikkonurnar voru hver annarri glæsilegri í glitrandi glæsikjólum.