Fyrstu myndir úr Lífsleikni Gillz 23. október 2012 14:45 Fjöldi landsþekktra leikara fara á kostum í þáttunum. Flettið myndunum til að skoða fleiri atriði.
Fyrstu ljósmyndir af atriðum úr þáttaröðinni Lífsleikni Gillz benda til þess að þar sé mikill hasar og skemmtilegt grín á ferðinni. Þáttaröðin hefur verið endurklippt til sýninga í kvikmyndahúsum og verður frumsýnd nú í nóvember. Hægt er að skoða ljósmyndirnar hér með greininni en fyrsta sýnishornið úr þáttunum verður síðan frumsýnd á Vísi á fimmtudaginn klukkan 11. Þættirnir eru framleiddir af Stórveldinu og eru framhald af þáttunum Mannasiðir Gillz sem sýndir voru á Stöð 2 í fyrra. Sem fyrr er það landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson sem leikstýrir. "Mannasiðir Gillz var vinsælasta íslenska serían á Stöð 2 í fyrra og Lífsleikni Gillz er einfaldlega betri, það er ekki flóknara en það,“ segir Egill Gillzenegger Einarsson, höfundur og aðalleikari þáttanna. "Þættirnir eru til þess gerðir að létta fólki lundina. Það er orðið langt síðan að gott gott íslenskt grín var aðgengilegt í kvikmyndahúsum. Það er því hvalreki fyrir þá sem vilja kitla hláturtaugarnar að Lífsleikni sé á leið í bíó því þetta er fyndnasta íslenska efnið síðan Sódóma var og hét. Ég treysti mér til að henda því fram og er ég þó orðvar maður alla jafna,“ segir Egill. Þættirnir eru uppbyggðir eins og Mannasiðir. Fylgst er með nokkrum misheppnuðum gaurum, svonefndum rasshausum, reyna að fóta sig í hinum ýmsu aðstæðum. Þeir klúðra öllu í kringum sig í sprenghlægilegum dæmisögum þar sem Gillz kemur iðulega eins og frelsandi engill og bjargar málunum. "Það eru nýir rasshausar í þessari seríu. Pétur Jóhann leikur ástsjúkan stöðumælavörð sem veit ekkert hvernig hann á að haga sér í kringum konur og það er veisla að fylgjast með honum þar. Þorsteinn Guðmundsson bregður sér í líki þessa dæmigerða Íslendings sem fer til útlanda og er með allt niðrum sig. Andri Freyr Viðarsson leikur ofdekrað borgarbarn og tölvunörd sem neyðist til að flytja út á land og þarf að höndla það grjótharða umhverfi. Þá leikur Hannes Óli Ágústsson mann sem er að finna sjálfan sig og stíga sín fyrstu skref út úr skápnum. Loks leikur Hilmar Guðjónsson svo heigul sem dreymir um það að vera hetja einn daginn,“ segir Egill. "Ég lofa veislu. Það er ekki flóknara. Margir aðrir frábærir leikarar koma einnig fram í þáttunum, það eru hreinlega allir bestu leikarar landsins þarna. Hannes náði því besta úr þeim öllum enda er hann snillingur og einn albesti leikstjóri landsins.“ Sem fyrr segir verður fyrsta sýnishornið úr þáttunum frumsýnt hér á Vísi á fimmtudaginn.
Mest lesið Valdi fallegasta karlmanninn Lífið „Innsýn í djammlífið og hvernig Gugga í gúmmíbát djammar“ Lífið Ástin blómstrar hjá Ara Edwald og Ingibjörgu Lífið Kynþokkafyllstu karlmenn landsins Lífið Algjör óvissa með Söngvakeppnina Lífið „Veit að pabbi væri stoltur af mér“ Lífið „Ekkert of gott að vera of grannur“ Lífið Ólafur og Hildur selja í Vesturbænum Lífið Íslenskur Taskmaster kemur í vor Bíó og sjónvarp Laufey tilnefnd til Grammy-verðlauna Lífið Fleiri fréttir Laufey tilnefnd til Grammy-verðlauna Elskar að bera klúta Valdi fallegasta karlmanninn Algjör óvissa með Söngvakeppnina Ólafur og Hildur selja í Vesturbænum „Ekkert of gott að vera of grannur“ Góð fjölskyldustund öll föstudagskvöld Nýsjálenskur James Bond-leikstjóri látinn Fundaði með rabbína til að biðjast afsökunar á gyðingaandúðinni „Þegar ég var átján ára gömul fæ ég aðra ábendingu“ „Innsýn í djammlífið og hvernig Gugga í gúmmíbát djammar“ Ástin blómstrar hjá Ara Edwald og Ingibjörgu „Veit að pabbi væri stoltur af mér“ Kynþokkafyllstu karlmenn landsins Love Island bomba keppir í Eurovision „Við vitum í raun ekkert hvað bíður okkar“ Finnur fyrir skoðunum fólks á aldursmuninum Öskraði „pegga“ og salurinn grét úr hlátri „Ég vil verða eins og þú þegar ég verð stór“ Yfirgáfu salinn þegar gæslunni var sigað á „heimska“ ungfrú Mexíkó Nablinn ræðir um naflann fræga: Enginn gröftur en stundum skvört Sóldís Vala hafnaði í öðru sæti í Miss Earth Klettaskóli og Langholtsskóli áfram í úrslit Skrekk Hálft ár af hári Draumur að vinna í listrænum heimi Stokkhólms Einstök ástarsaga: „Ástin okkar var nógu sterk til að yfirstíga hindranir“ Sköpunarkrafturinn var allsráðandi í Höfuðstöðinni Taka einbýlishús í Garðabænum í gegn Hélt að allir væru ættleiddir Rjóminn gleymdist en guð var að fylgjast með Sjá meira