Stríðshetja í krabbameinsbaráttu 24. október 2012 10:36 Biggi Hilmars. „
Ég samdi texta lagsins War Hero til systur minnar þegar hún var að berjast við krabbamein. Hún er stríðshetjan,“ segir tónlistarmaðurinn Biggi Hilmars. Systir Bigga, Ágústa Erna, hafði betur í baráttunni við brjóstakrabbamein fyrir rúmu ári. Í laginu War Hero syngur Biggi til hennar og um baráttu hennar og í tilefni Bleikrar slaufu-mánaðar Krabbameinsfélagsins ákvað hann að gefa lagið á internetinu. Með því að gefa alþjóð lagið vonast ég til að það geti veitt fólki von í baráttunni við krabbamein. „Það er nefnilega oft von þó hún kunni að virðast fjarlæg,“ segir hann. Lagið er meðal annars hægt að nálgast á Facebook síðu Bigga, Facebook.com/biggihilmars. Biggi tekur einnig þátt í Bleiku boði Krabbameinsfélagsins í Háskólabíói á morgun. „Ég er bæði glaður og stoltur af því að fá að taka þátt í þessu kvöldi. Ég flyt þrjú lög og verð með hljómsveit og strengjasveit með mér. Þetta verður tekið alla leið,“ segir hann. Bleika boðið er árlegur viðburður Krabbameinsfélagsins þar sem fjöldi listamanna gefur vinnu sína og konur eiga saman gott kvöld. Meðal þeirra sem koma fram í ár auk Bigga eru Védís Hervör, Margrét Eir, Sigga Beinteins, Diddú og Ari Eldjárn auk þess sem haldin verður tískusýning frá Fatahönnunarfélagi Íslands. Miðaverð er aðeins kr. 2.000 og rennur allur ágóði til Krabbameinsfélagsins. Enn er hægt að nálgast miða á www.bleikabodid.is og í síma 540 1900. - trs
Mest lesið Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Lífið Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Lífið Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Lífið Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Lífið Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Sjá meira