Lét fjarlægja brjóstin af ótta við krabbamein 26. október 2012 10:15 Valdís Konráðsdóttir tók örlögin í sínar hendur.
Í október á hverju ári snýr þjóðin bökum saman og sýnir konum þessa lands sem háð hafa baráttu við brjóstakrabbamein stuðning og minnist þeirra sem sjúkdómurinn hefur fellt ásamt því að auka vitund kvenna almennt um sjúkdóminn. Innlegg Lífsins er saga hinnar hugrökku Valdísar Konráðsdóttur, 34 ára, en hún tók örlögin í eigin hendur ef svo má segja og fór í mikla forvarnaaðgerð þar sem löng og mikil saga um krabbamein er í fjölskyldunni. Móðir Valdísar, Agnes Guðnadóttir, greindist með brjóstakrabbamein árið 1997, þá fjörutíu og fimm ára gömul. Fór hún í kjölfarið í fleygskurð og geislameðferð með ágætum árangri. Ellefu árum síðar greindist hún á ný og var þá brjóstið fjarlægt. Móðir hennar og amma Valdísar, Anna Bergþórsdóttir, lést úr þessum sama sjúkdómi í mars 1997. "Systkini hennar voru þá bæði látin úr krabbameini. Bróðurdóttir ömmu var aðeins 31 árs og ólétt þegar hún greindist með brjóstakrabbamein og hóf hún baráttu sína gegn sjúkdómnum daginn eftir fæðingu barns síns og hélt þeirri baráttu stanslaust áfram í sjö ár eða þar til hún lést árið 1998, aðeins 38 ára gömul."Vissi ekki að krabbamein gæti verið genatengt Valdís hafði verið búsett í Noregi ásamt fjölskyldu sinni en flutti heim árið 2008, eða þegar móðir hennar greindist í annað sinn. "Á þessum tíma fór ég að velta fyrir mér hvort ég, þá orðin þrítug, ætti eða gæti verið í auknu eftirliti miðað við fjölskyldusöguna. Ég hringdi á Leitarstöðina og þá var mér bent á að tala við Vigdísi Stefánsdóttur, erfðaráðgjafa hjá Landspítalanum. Þarna vissi ég ekki að krabbamein gæti verið genatengt."Valdís fór í viðtal til Vigdísar sem og Óskars Þórs Jóhannssonar krabbameinslæknis, þar sem ættarsaga hennar var rakin. Í kjölfarið kom móðir hennar suður og fór í viðtal og blóðprufu. Blóðrannsókn sýndi að hún væri BRCA2-arfberi. "Þær konur sem eru með BRCA2-erfðavísi eru líklegri til að fá brjóstakrabbamein á lífsleiðinni og einnig eggjastokkakrabbamein (þó fer það svolítið eftir fjölskyldum). Hjá karlmönnum er hættan á krabbameini í brisi eða í blöðruhálskirtli. Fimmtíuprósenta líkur eru á því að þetta gen erfist til barna hvort sem er um konu eða karl að ræða. Síðustu ár hef ég heyrt ýmsar prósentutölur eða allt frá sextíu og upp í níutíu prósent auknar líkur á brjóstakrabbameini."Áfallið "Strax eftir að mamma var búin að greinast með breytt BRCA2-gen var sent bréf til allrar móðurættarinnar. Þar á meðal til þriggja systra mömmu og til okkar systkinanna. Svo heppilega vildi til að enginn annar greindist með BRCA2-breytingu nema mamma og ég. Þetta var vissulega áfall en innst inni vissi ég þetta einhvern veginn. Eftir greininguna tók við aukið eftirlit, myndatökur og blóðprufur. Það reyndi mikið á bæði mig og alla í kringum mig að fara í myndatöku á sex mánaða fresti, þá aðallega að bíða eftir niðurstöðum. Þetta gerði ég í tvö ár eða þar til móðir mín greindist í þriðja skiptið með krabbamein aðeins 58 ára gömul.aða fresti, þá aðallega að bíða eftir niðurstöðum. Þetta gerði ég í tvö ár eða þar til móðir mín greindist í þriðja skiptið með krabbamein aðeins 58 ára gömul. Hún hafði sjálf eins og ég verið í auknu eftirliti með blóðprufum og myndatökum en því miður fékk hún meinvörp frá brjóstakrabbameininu síðan 2008 í beinin og það er ólæknandi."Ákvað að bíða ekki eftir krabbanumEftir þessa röð áfalla breyttist viðhorf Valdísar gagnvart brjóstnámi. "Ég og maðurinn minn tókum þá ákvörðun í sameiningu að bíða ekki eftir því að greinast með krabbamein heldur láta fjarlægja þessa ógn sem fyrst. Í framhaldi fórum við hjónin saman í viðtöl til lýtalækna og reyndum að fá eins miklar upplýsingar um brjóstnám og hægt var. Á þessu tíma fékk ég símtal frá yndislegri konu sem einnig hafði farið í gegnum svona fyrirbyggjandi aðgerð. Við hittumst og hún leiddi mig í gegnum sína sögu, sem er mér ómetanlegt. Það breytti öllu fyrir mig að eiga hana að og geta fengið upplýsingar og sjá brjóst, ör og annað eftir svona aðgerð."Fimm daga á sjúkrahúsi Ákvörðun var tekin og Valdís fór í brjóstnám þann 30. janúar á þessu ári. "Aðgerðin gekk mjög vel og var ekki eins sársaukafull og ég átti von á, enda fékk ég mikið af verkjalyfjum." Valdís lá inni á sjúkrahúsi í fimm daga."Mamma var mjög dugleg að reka mig á fætur til þess að gera æfingar sem hjálpaði til við batann. Annars fékk ég ómetanlega hjálp úr öllum áttum. Tengdamóðir mín Hildur, sem búsett í Noregi, kom til landsins og sá um heimilið og dætur okkar á meðan Elli, eiginmaður minn, var að vinna og halda mér félagsskap. Stóra systir mín frá Dalvík kom til okkar nokkrum vikum eftir aðgerðina og bjó hjá okkur í eina viku og sá um allt heimilið. Svo kom hann Andri mágur minn, en hann er lýtalæknir í Svíþjóð, og er sérsvið hans einmitt uppbygging á brjóstum eftir brottnám. Þegar ég fór í aðgerðina fylgdist hann með henni. Það var gott að vita af honum og mikill stuðningur. Ég verð öllu þessu fólki ævinlega þakklát fyrir hjálpina."Geirvörtur úr eyrnasneplunum Valdís var í sjö vikur frá vinnu sem var nauðsynlegt til að ná góðum bata. Í aðgerðinni voru bæði brjóstin tekin, ásamt geirvörtum, öllum vef og fitu. "Sem sagt allt hreinsað enda eru í dag mjög litlar líkur á að ég fái brjóstakrabbamein. Þá voru settir svokallaðir vefþenslupokar undir brjóstvöðvann sem voru síðan fylltir af saltvatni í nokkrum skömmtum. Í byrjun maí voru svo þessir pokar fjarlægðir og sílikon sett í staðinn, þá var ég um það bil þrjár vikur frá vinnu.Fyrir nokkrum vikum fór ég svo og lét búa til geirvörtur með því að taka bita úr eyrnasneplunum og sauma á brjóstin, þessi litla aðgerð gekk líka mjög vel og ég er í rauninni enn þá að gróa." Í næsta mánuði fær Valdís svo tattú á Landspítalanum í stað vörtubaugsins. "Þetta er búið að vera langt ferli sem tekur þó senn enda og ég sé ekki eftir neinu. Hún Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir hefur gefið mér ótrúlega flott og heilbrigð brjóst og hún hefur reynst mér afar vel. Ég mun svo halda áfram í stöðugu eftirliti og fara á sex mánaða fresti í sónar og blóðprufu vegna eggjastokkanna alveg til fertugs en þá verða þeir fjarlægðir."Ekkert feimnismál Eftir þessa lífsreynslu telur Valdís nauðsynlegt að stofnaður verði stuðningshópur fólk á Íslandi með breytt BRCA gen. "Það er nauðsynlegt að geta talað við aðra í sömum sporum og deilt sinni reynslu. Þó svo að við séum ekki öll veik eða komin með sjúkdóm þá erum við með genagalla sem er flókið fyrirbæri og erfitt enda þarf oft að taka mjög erfiðar ákvarðanir út frá því."Spurð um það hvort henni hafi ekki fundist óþægilegt að opinbera sögu sína segist hún strax hafa tekið þá ákvörðun að tala opinskátt um reynslu sína. "Fyrir mér er þetta ekki feimnismál og ég ákvað það líka aðtaka sjálfa mig og aðstæður ekki of alvarlega og reyna að vera jákvæð. Svo hefur verið mikil hjálp í því að sjá húmorinn í öllum þessum erfiðleikum en þar koma maðurinn minn og dæturnar sterk inn. Þau hafa átt auðvelt með að fá mig til að brosa og hlæja í gegnum þetta allt sem er ómetanlegt. En markmiðið með því að segja sögu mína er vissulega það að vekja athygli á BRCA og deila minni upplifun af brjóstnáminu, sérstaklega fyrir konur sem eru í sömu sporum og ég var fyrir ári síðan og eru að velta því fyrir sér hvað þær eiga að gera."Mamma er hetjan Valdís segist hafa fengið einstakan stuðning við þessa stóru ákvörðun. "Ég er svo ótrúlega heppin að eiga marga góða að, eiginmann, foreldra, tengdaforeldra, börn, systkini, vini, samstarfsfélaga og vinnuveitendur. Allir hafa sýnt mér mikinn stuðning sem ég verð ævinlega þakklát fyrir." Valdís segir móður sína vera hetjuna í þessu öllu saman og reyndar föður sinn líka sem gengur í gegnum sjúkdóminn með henni. "Ég fæ illt í hjartað þegar ég hugsa til þess að hún sé með ólæknandi krabbamein. Hún er svo ótrúlega sterk og dugleg. Hún tekur sig til á hverjum degi, hún er stanslaust í erfiðri meðferð þó svo að það sjáist ekki á henni, en þetta tekur mikið á og hún er orðin þreytt og þollítil. Hún er fyrirmyndin mín og styrkur í einu og öllu." Að lokum langar mig til að segja: "Lífið er stutt, njótum lífsins og verum glöð, það eru forréttindi að vera heilbrigður."Valdís verður í kvöld í ýtarlegra viðtali ásamt móður sinni í Íslandi í dag, strax að loknum kvöldfréttum á Stöð 2.Lesa Lífið í heild sinni hér.
Mest lesið Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Lífið „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Lífið Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Lífið Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Lífið Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Lífið Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Lífið Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Lífið Fleiri fréttir „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Sjá meira