Innlent

Sandy í rauntíma

Fellibylurinn Sandy.
Fellibylurinn Sandy. MYND/GOOGLE
Tæknirisinn Google hefur birt gagnvirkt kort af þróun mála við austurströnd Bandaríkjanna. Helstu upplýsingar um veðurfar, staðsetningu neyðarskýla og áætlaða leið fellibylsins Sandy má finna á kortinu.

Google notast við upplýsingar frá Veðurstofu Bandaríkjanna, Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna og fleiri stofnunum.

Fyrirtækið þurfti að aflýsa blaðamannafundi sínum í dag en hann átti að fara fram á bryggju sem nú hefur verið rýmt. Google hafði hugsað sé að svipta hulunni af Nexus 4 snjallsímanum og kynna uppfærða útgáfu af Jelly Bean stýrikerfinu.

Hægt er að sjá kortið hér fyrir neðan:



Um sextíu milljónir manna geta orðið fyrir barðinu á Sandy vegna flóða og rafmagnsleysis.

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í nokkrum ríkjum á austurströndinni, þar meðal New Yorkríki, Pennsylvaníu og Virginíu. Hersveitir úr þjóðvarðarliðinu hefur verið kallað út.Norður Karólínu. Í þessum ríkjum hafa hersveitir úr þjóðvarðliðinu verið kallaðar út og eru þær í viðbragðsstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×