Vopnaður ofurkroppur 29. október 2012 15:45 Smelltu á mynd til að skoða myndaalbúmið. Myndir/Einkasafn Sylvíu.
Íslensk stúlka, Sylvía Narvaez Antonsdóttir, 24 ára, sem starfar í þjónustuverinu hjá Sixt og stundar fjarnám í Háskólanum á Akureyri, náði góðum árangri á NPC Titans Grand Prix fitnessmótinu sem fram fór í Los Angeles í Kaliforníu í Bandaríkjunum á dögunum. Sylvía sigraði í bikiní flokki og svokölluðum overall flokki þar sem hún keppti við hvorki meira né minna en 98 stúlkur í öllum flokkunum í módelfitness.Hvernig tilfinning var að vinna? Það var frábært að vinna minn flokk en ég hafði ekki ímyndað mér að vinna allar stelpurnar sem unnu sína flokka líka. Þegar ég heyrði nafnið mitt var ég í skýjunum. Verðlaunagripurinn - af hverju sverð? Mótshaldarinn John Lindsay nefnir mótin sín alltaf með stríðsmanna-nöfnum eins og Excalibur og Títans. Hann hefur alltaf verið með sverð í verðlaun fyrir Overall-flokkinn.Hvernig ætlar þú að taka sverðið með heim til Íslands? Ég tek það með í flugvélinni og krossa fingur að tollurinn muni ekki gera athugasemd.Þarftu að sækja um sérstakt leyfi? Jú, ég er búin að hafa samband við Ríkislögreglustjóra og það tekur nokkra daga að fá svar. Þeir voru með svipaðar spurningar og þú eins og úr hverju er sverðið, þyngd og efni. Sverðið er úr stáli og leðri. Það er mjög þungt, - ég get varla haldið því upprétt með einni hendi.Hvernig undirbjóstu þig fyrir keppnina? Þar sem ég keppi í módelfitness þá reyni ég að vera í formi allt árið, síðan 10 vikum fyrir mót set ég allt á fullt og lyfti 6 sinnum í viku. Æfingarnar mínar eru allar supersett. Tek síðan 3-6 brennslur stundum á morgnana eða strax eftir æfingu.En þegar kemur að næringu? Mataræðið mitt er mjög fjölbreytt. Ég fæ prótín úr þorski, eggjahvítum, bringum, túnfisk og nautakjöti. Kolvetnin fæ ég úr sætum karteflum, grænmeti, hafragraut, brún hrísgrjón, aspas og ósöltuðum hrískökum. Aspas er algjört æði en verst er að það er svo erfitt að finna aspas á Íslandi. Ég er yfirleitt heilu helgarnar að rúnta um milli Hagkaupa og Krónunnar að leita að ferskum aspas.Fær fituna úr laxi og möndlum Eftir æfingar finnst mér stundum gott að fá mér Aloe Vera King drykk sem var að koma til íslands. Fituna fæ ég síðan úr laxi, möndlum, avocado og hnetusmjöri. Ef ég er á hraðferð þá fæ ég mer oftast burrito skál á serrano. Mér finnst sterkur mexicanskur matur mjög góður.Sylvía á pallinum.Sylvía með sverðið góða."Það er mjög þungt, - ég get varla haldið því upprétt með einni hendi," segir Sylvía.
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Fleiri fréttir Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Sjá meira