Lífið

Ekki ólétt

mynd/cover media
Korter eftir leynilegt brúðkaup leikaranna Blake Lively og Ryan Reynolds og slúðurheimurinn gjörsamlega logar yfir því að væntanlegur Lively-Reynolds erfingi sé á leiðinni í heiminn. Hollywoodparið sem gifti sig fyrir tveimur vikum hefur hinsvegar sent frá sér tilkynningu um að þau eigi ekki ennþá von á barni.

Ástæðan er að Blake er byrjuð að borða meiri mat en venjulega og þar af leiðandi gengur hún með barn undir belti - sem er auðvitað eingöngu ágiskun af hálfu slúðurmiðla vestan hafs.

Blake og Ryan sem kynntust árið 2011 þegar þau léku saman í kvikmyndinni The Green Lantern ætla að reyna að njóta sín án þess að sökkva sér í slúðurfréttirnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.