Innlent

Heimsbyggðin skemmtir sér yfir "týndu“ konunni - gríðarleg landkynning

Leitað að týndu konunni.
Leitað að týndu konunni.
Enn er fjallað um mistök rútubílstjórans sem taldi vitlaust þegar hann ætlaði að kanna hvort allir farþegar sem voru að ferðast með rútunni væru búnir að skila sér. Hátt í 50 einstaklingar voru kallaðir út til þess að leita að konunni á laugardaginn síðasta en svo kom í ljós að konan tók þátt í eigin leit.

Fjölmiðlarnir USA Today fjölluðu meðal annars um málið í dag. Breska stórblaðið The Independent fjallaði einnig um málið. Þá hafa fjölmiðlar eins og CBS, New York Daily News, Time og Daily Mail fjallað um vandræðalega misstalningu bílstjórans.

Og fréttin hefur farið víðar, eftir því sem Vísir kemst næst hafa yfir 30 fjölmiðlar um allan heim fjallað um málið. Þannig hafa indverskir lesendur skemmt sér yfir fréttinni sem og þeir áströlsku.

Reykjavík Síðdegis ræddi við Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, fyrr í vikunni um málið en það var bílstjóri á þeirra vegum sem gerði þessu vandræðalegu mistök.

Í viðtalinu sagðist Kristján ekki hafa rætt við bílstjórann sjálfann, „en mér skilst að hann sé miður sín yfir þessu. Þetta er góður og vanur starfsmaður sem hefur unnið lengi hjá okkur," sagði Kristján.

Hann bætti svo við: „Hann telur eflaust tvisvar næst."

Það er þó óhætt að segja að mistök bílstjórans hafi engu að síður haft jákvæðar hliðarverkanir. Enda fær Ísland gríðarlega mikla landkynningu út af málinu þar sem oft er einnig fjallað um einstaka náttúru Íslands í sömu andrá. Og sumir vilja meina að slæm umfjöllun, eða vandræðalega í þessu tilviki, sé hugsanlega betri en engin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×