Innlent

Fjölskylduharmleikur í Garðabæ: Hleypti af byssu inni á heimilinu

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Einn maður var handtekinn í íbúðarhúsi í Garðabæ seinni partinn í gær eftir að hleypt var af skotvopni.

Lögreglan naut aðstoðar Ríkislögreglustjóra við að yfirbuga manninn en um þrjátíu manns tóku þátt í aðgerðunum.

Að sögn lögreglu er um fjölskylduharmleik að ræða en maðurinn hleypti af byssunni í gólfið og hlaut enginn skaða af.

Hann verður yfirheyrður í dag og síðan komið undir læknishendur að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×