Engin sundlaug í Fossvoginn í bili Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. ágúst 2012 14:17 Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Ólíklegt má telja að sundlaug í Fossvoginum verði að veruleika á allra næstu árum en borgarstjóri og bæjarstjórinn í Kópavogi ræddu málið á fundi fyrir helgina. Reykjavíkurborg óskaði eftir viðræðum við Kópavogsbæ um málefni Fossvogsdalsins til að ræða göngu og hjólabrú yfir Fossvoginn og nýja sundlaug. Borgarstjóri og bæjarstjórinn í Kópavogi hittust á fundi fyrir helgi til að ræða þessi mál. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi segir ólíklegt að sundlaug verði reist í Fossvoginum á allra næstu árum. Viðræður séu skammt á veg komnar. „Þessar hugmyndir eru eldgamlar ef svo má segja. Þær hafa legið í láginni um allnokkurt skeið hjá okkur og eins hjá borginni. Við höfum ákveðið að taka upp viðræður á ný varðandi þessa gömlu hugmynd. Ég held að það megi segja það að þetta sé á allra fyrstu stigum, á frumstigi. Það var ekkert rætt varðandi framkvæmdir á því heldur eingöngu að horfa til þess hvernig sundlaugin geti komið inn á skipulag í Fossvogsdalnum þannig að bæði sveitarfélögin gætu vel við unað," segir Ármann. Hann segir mikilvægt að það liggi skýrt fyrir áður en tekin verði ákvörðun um hvort að farið verð í verkefnið hvernig kostnaðurinn muni skiptast á milli Kópavogs og Reykjavíkur. „Það er að sjálfsögðu áhugi en ég tek það þó fram að við erum að borga náttúrulega umtalsverða peninga með þeim sundlaugum sem við erum að reka í dag. Þannig að við þurfum að sjá alveg fyrir endann á því hvernig að þeim rekstri yrði staðið. Þannig að það þarf algjörlega að vera skýrt hvernig það mun koma út fyrir bæjarsjóð sá rekstur," sagði Ármann Kr. Ólafsson.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent Fleiri fréttir Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Sjá meira