Innlent

Bjarni Benediktsson: Forsætisráðherrann misbeitti valdi sínu tvívegis

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson.
"Það sem er athyglisvert í þessu er það að forsætisráðherrann, sem var sú sem krafðist þess að niðurstaða kærunefndar jafnréttismála yrði bindandi, reyndi við fyrsta tækifæri að líta framhjá þeirri niðurstöðu og höfðaði dómsmál til þess að fá því hnekkt," segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti úrskurð kærunefndar jafnréttismála um að forsætisráðuneytið hefði brotið jafnréttislög þegar Anna Kristín Ólafsdóttir hafi verið að minnsta kosti jafn hæf til þess að gegna starfi skrifstofustjóra á skrifstofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar í forsætisráðuneytinu.

Þá var ríkinu einnig gert að greiða henni hálfa milljón í miskabætur vegna yfirlýsingar ráðuneytisins sem var birt á heimasíðu þess þegar úrskurður kærunefndarinnar var kunngerður á síðasta ári.

„Nú er það staðfest, bæði fyrir kærunefnd og héraðsdómi, að hún braut lög og nú er það spurning hvort hún viðurkenni það og horfist í augu við þá niðurstöðu. Enda kominn tími til," segir Bjarni um niðurstöðu Héraðsdóm Reykjavíkur.

Hann bendir á að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi síðan greitt Önnu Kristínu miskabætur vegna viðbragða ráðuneytisins við úrskurði kærunefndar jafnréttismála.

„Þannig það var ekki nóg með að héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að jafnréttislög voru brotin, heldur hélt hún áfram að brjóta á rétti hennar með þeim afleiðingum að miskabótakrafa var samþykkt," segir Bjarni og bætir við að lokum: „Forsætisráðherrann misbeitti því ekki valdi sínu einu sinni, heldur tvisvar."


Tengdar fréttir

Ráðuneytið fagnar niðurstöðu í jafnréttismálinu

Forsætisráðuneytið fagnar því að niðurstaða héraðsdóms í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn íslenska ríkinu liggi fyrir. "Í samræmi við fyrri yfirlýsingar mínar og sáttavilja í þessu máli ítreka ég þá von, að með þessari niðurstöðu megi ljúka málinu, með sama hætti og ég lagði sjálf til þegar í upphafi," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í tilefni dómsins. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu er vakin athygli á því að í dóminum sé kröfu stefnanda um skaðabætur hafnað en fallist á sömu fjárhæð miskabóta og forsætisráðuneytið hafði þegar boðið stefnanda í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála.

Héraðsdómur: Jóhanna braut jafnréttislög

Anna Kristín Ólafsdóttir, fékk í dag dæmdar 500 þúsund krónur, í miskabætur frá ríkinu. Hún var umsækjandi um stöðu skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu. Arnar Þór Másson var ráðinn í stöðuna. Anna Kristín kærði ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna þegar hún skipaði Arnar í stöðuna.

Anna Kristín: "Þetta er sigur fyrir konur“

„Þetta er áhugavert út af fyrir sig, það er ekki algengt að forsætisráðherra sé gert að borga einstaklingi miskabætur fyrir að ganga yfir hann á skítugum skónum," sagði Anna Kristín Ólafsdóttir um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti úrskurð kærunefndar jafnréttismála um að hún hafi verið að minnsta kosti jafn hæf til þess að gegna starfi skrifstofustjóra á nýrri skrifstofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar í forsætisráðuneytinu. Sjálf var Anna Kristín stödd erlendis í fríi þegar Vísir náði tali af henni og hafði ekki lesið dóminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×