Innlent

Neituðu að ræsa varðskipin - Kalla þurfti út dráttarbát

VG skrifar
Kalla þurfti út dráttarbát í morgun til þess að draga varðskipin Ægi og Tý frá bryggju svo varðskipið Þór gæti lagst að bryggjunni. Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni Faxaflóahafnar í Reykjavík þá var ástæðan sú að enginn vélstjóri fékkst til þess að ræsa skipin, þurfti því að draga þau frá bryggju með dráttarbát.

Samkvæmt upplýsingum Vísis þá er mikil óánægja á meðal vélstjóra þar sem ekki hefur verið samið við þá um launakjör, þeir hafi því neitað að ræsa skipin í morgun.

Hjá Faxaflóahöfnum fengust þau svör hinsvegar að það væri ekki óalgengt að hafnsögumenn væru fengnir til þess að færa skip til þess að spara tilkostnað og fyrirhöfn.

Fréttastofa hefur ekki náð í Georg Kr. Lárusson vegna málsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Athugasemd: Þess ber að geta að það var ekki vakthafandi hafnsögumaður Faxaflóahafnar sem Vísir ræddi við um málið. Þaðan fengust þau svör að þeir hefðu verið beðnir um að færa skipin af hálfu Landhelgisgæslunnar, en engin ástæða hefði verið tilgreind í því samhengi.

Dráttarbátur dregur varðskip.MYNDIR/GVA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×