Innlent

Reynslusaga af nauðgun - sigur að koma í veg fyrir koss

BBI skrifar
Myndin er frá Slutwalk í Toronto.
Myndin er frá Slutwalk í Toronto.
Nauðgunarfórnarlamb skrifar um reynslu sína á vefmiðlinum drusluganga.org í dag. Þar segir hún frá því þegar tröllaukinn sjómaður nauðgaði henni í partíi. Greinin nefnist Mér var nauðgað.

„Sigur minn það kvöld var að koma í veg fyrir að honum tækist að kyssa mig á munninn," segir hún og lýsir reiðinni sem kraumaði í henni eftir atvikið.

„Ég er reið yfir því að þegar ég loks leitaði mér hjálpar hjá Stígamótum nærri aðframkomin, tók rúmar tvær vikur að fá viðtalstíma og nærri allur hluti hans fór í að fylla út eyðublöð um nauðgarana mína, hvenær nauðganirnar áttu sér stað og hvað margir tóku þátt í þeim. Ég er reið yfir því að stolt mitt aftraði mér frá því að skæla í viðtalinu við Stígamót og því fékk ég að heyra að líklega væri ég búin að vinna svo vel úr nauðguninni að ég þyrfti ekki á frekari aðstoð að halda, mér finnst ég eiga rétt á aðstoð. Ég er reið yfir því að fólk sé fullvist um að niðurfelling mála þýði að nauðgari sé saklaus," segir í greininni.

Greinin er meðal annars skrifuð til að vekja athygli á Druslugöngunni sem verður farin í annað sinn á laugardaginn næsta. Með göngunni er markmiðið að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá fórnarlömbum og yfir á gerendur, ekki einblína á klæðnað eða hegðun þolenda sem mögulega afsökun. Gengið verður frá Skólavörðustíg að Lækjartorgi.

Hér má lesa greinina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×