Innlent

Óvenjulega formlegur samningur um þinglok

BBI skrifar
Sigurður Líndal, lagaprófessor, telur óvenjulegt hve formlega er gengið frá samningum ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um þinglok að þessu sinni. Stjórnarflokkarnir undirrituðu formlega yfirlýsingu í gær um að frumvarp til laga um veiðigjöld yrði afgreitt en beðið með frumvarpið um fiskveiðistjórnunina fram á haust og umdeildustu atriði þess endurskoðuð.

Sigurður segir í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við að alþingismenn geri óformlega samninga um þinglok þar sem ákveðið er að fresta ákveðnum málum. „En að óígrunduðu máli man ég ekki eftir að það hafi beinlínis verið undirritaður samningur," segir hann.

Jóhanna Sigurðardóttir sagðist aftur á móti áður hafa séð svona skriflegt samkomulag á þingferli sínum í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Stjórnarandstaðan ku hafa farið fram á slíka skriflega yfirlýsingu vegna „slæmrar fyrri reynslu af loforðum forystumanna ríkisstjórnarinnar".

Sigurður Líndal telur ólíklegt að yfirlýsing af þessum toga hafi nokkur réttaráhrif. „Ég sé nú ekki að menn geti stefnt ríkisstjórninni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og fengið dóm ef hún svíkur þessi loforð. En þetta hefur náttúrlega svona siðferðilegt gildi," segir hann og talar um pólitískar afleiðingar sem svona eiðrof gætu haft eins og að torvelda myndun næstu ríkisstjórnar.

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon undirrituðu téða yfirlýsingu í gær og uppúr því náðist samkomulag um þinglok.


Tengdar fréttir

Samkomulag um hlé á þingstörfum

Samkomulag hefur náðst á milli formanna flokka á alþingi um að gera hlé á þingstörfum og verður þeim væntanlega frestað frá og með morgundeginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×