Innlent

Rannsaka og skrásetja eyðibýli

Eyðibýli í Stapadal.
Eyðibýli í Stapadal.
Í sveitum landsins er fjöldi eyðibýla og yfirgefinna íbúðarhúsa sem mörg hver eru vel byggð og geyma merka sögu. Nú, annað árið í röð, eru átta háskólanemar úr verkfræði, arkitektúr, jarðfræði og fornleifafræði vinna við að rannsaka þau og skrásetja með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna að því er fram kemur á heimasíðu Akureyri Vikublaðsins.

Þar segir að til standi að skrásetja á komandi árum allt landið á þennan máta og er tilgangurinn að skapa verðmætan þekkingargrunn um líf Íslendinga fyrr á tímum.

Verkefninu var hrundið af stað sumarið 2011 þegar hópurinn rannsakaði eyðibýli og yfirgefin hús á suður- og suðausturlandi en í sumar verður Norðurland eystra skoðað ásamt Vesturlandi.

Markmið verkefnisins Eyðibýli á Íslandi er að rannsaka og skrá umfang og menningarlegt vægi eyðibýla og annarra yfirgefinna íbúðarhúsa í sveitum landsins. Jafnframt að stuðla að björgun áhugaverðra og byggingarsögulega mikilvægra húsa, m.a. með endurgerð og nýtingu í ferðaþjónustu.

Nánar má fræðast um málið á heimasíðu Akureyri Vikublaðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×