Innlent

Ástþór ánægður að óvissunni sé eytt - vill lögregluna í málið

Ástþór fær ekki að bjóða sig fram í forsetakosningunum.
Ástþór fær ekki að bjóða sig fram í forsetakosningunum.
„Ég hef ekki hugmynd um hvað býr þarna að baki," segir Ástþór Magnússon, fyrrum forsetaframbjóðandi. Innanríkisráðuneytið telur, að í ljósi þess að ekki liggi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftarlistum til stuðnings Ástþóri, séu ekki uppfyllt ákvæði laga um framboð og kjör forseta. Hann verður því ekki með í kosningunum í lok þessa mánaðar.

„Þetta er að afhjúpa stóran galla í kosningakerfinu, þetta er ógilt vegna þess að ein kjörstjórn dregur til baka vottorð sem hún var búin að gefa á lista. Það sýnir að þeir hafa vottað lista án fyrirvara og undirstrikar að það er opin leið fyrir þá sem vilja ógilda framboð," segir Ástþór.

Í samtali við fréttastofu segir Ástþór að eðlilegast sé að lögreglan rannsaki málið. „Það hefur komið í ljós að þeir hafa vottað lista sem voru ekki í lagi - mér finnst að lögreglan verði að kalla á manninn sem gerði það og leita skýringa. Það þarf að rannsaka þetta."

Þó að hann fái ekki að bjóða sig fram segist hann vera nokkuð spakur. „Mér líður miklu betur að óvissunni sé eytt, það er verst að þurfa að vera í óvissu með þetta," segir hann.

Og hann er ekki farinn að spá í það hvern hann ætlar að kjósa. „Nei, ég hef ekki íhugað það ennþá. Það er nú bara þannig að þessar kosningar eru leynilegar kosningar. Það er réttur fólks að fá að halda því fyrir sjálfan sig," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×