Innlent

Braust inn á verkstæði og gerði þarfir sínar í fötu

Fullorðinn karlmaður lenti í vandræðum fyrr í vikunni þegar hann brá sér á klósettið hjá opinberri stofnun hér í borg. Vera hans á klósettinu dróst eitthvað á langinn og þegar hann kom út var búið að slökkva ljósin í afgreiðslunni og læsa útidyrahurðinni. Starfsfólkið var farið heim og var hann því fastur inni.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að það hafi verið honum til happs að vera með farsíma á sér og gat hringt eftir hjálp. „Lögreglu var gert viðvart en úr varð að öryggisverðir fóru á staðinn og leystu manninn úr prísundinni. Hann var afar þakklátur fyrir aðstoðina."

Og klósett kom aftur við sögu hjá lögreglu með óbeinum hætti í vikunni þegar að tilkynnt var um innbrot á verkstæði á höfuðborgarsvæðinu. „Engu reyndist hafa verið stolið en kannski var það því að þakka að innbrotsþjófnum hafði orðið brátt í brók. Ekkert klósett var á staðnum og því greip kauði í fötu til að gera þarfir sínar. Þrátt fyrir „sönnunargögn" á vettvangi tókst ekki að varpa frekara ljósi á þann sem þarna var á ferð," segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×