Ætti að vera á hverju ári 17. nóvember 2012 06:00 Krakkarnir í Laugalækjar-, Langholts- og Réttarholtsskóla voru ánægðir með sameiginlegt tónlistaratriði frá unglingum úr öllum skólunum. fréttablaðið/anton „
Við myndum aldrei læra ensku ef allt væri talsett,“ var meðal þess sem kom fram á málræktarþingi tíundu bekkinga úr Laugalækjarskóla, Langholtsskóla og Réttarholtsskóla, sem komu saman til þings í tilefni af degi íslenskrar tungu í gærmorgun. Fæstum leist vel á þá hugmynd að allt sjónvarpsefni hér á landi væri talsett. Krakkarnir hafa undanfarið unnið verkefni um gildi íslenskrar tungu og héldu fundi í skólanum um ýmislegt sem við kemur tungumálinu. Afraksturinn mátti sjá á þinginu í gærmorgun. Allir skólarnir sýndu myndband eða myndbönd og nemendur í Langholtsskóla sungu einnig tvö lög til að sýna fram á gildi íslenskunnar. Meðal þess sem var rætt var hvort rétt væri að leggja niður y til að einfalda málin. Þá komu fram mjög misjafnar skoðanir á störfum mannanafnanefndar og því að útlendingar hefðu áður fyrr þurft að taka upp íslensk nöfn til að fá íslenskan ríkisborgararétt. Sumir voru alfarið á móti því að mannanafnanefnd væri starfandi hér á landi en aðrir töldu mögulegt að börn yrðu lögð í einelti ef þau hétu of skrítnum nöfnum. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, minnti unglingana á að íslensk tunga væri menningarverðmæti. „Íslenskan stýrir því að einhverju leyti hvernig við hugsum, þannig að ef við hættum að tala íslensku breytist líka hvernig við hugsum og þá fer heimurinn svo margs á mis,“ sagði Katrín. Hún benti á velgengni íslenskra tónlistarmanna, kvikmynda, bóka og annarrar menningar og sagði mikilvægt að kunna góða íslensku til að starfa í skapandi greinum. „Stóra málið til að viðhalda íslenskunni er að horfa ekki bara á hana sem eitthvað sem á að varðveita heldur eitthvað sem á að vinna með, þess vegna fannst mér gaman að heyra ykkur tala um hana.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Artemis II er á heimleið Erlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Sjá meira