Verður athvarf og sögusafn 17. nóvember 2012 09:00 Hér má sjá fletið sem Guðmundur gerði sér oft að góðu dögum saman. mynd/björgólfur
Veiðikofi Guðmundar frá Miðdal við Stóru-Laxá verður endurgerður í vetur. Sett verður upp lítil sögusýning, auk þess sem veiðimenn fá kærkomna aðstöðu. Var fyrst varðkofi við Ölfusá í seinni heimsstyrjöld. Frægur veiðikofi fjöllistamannsins Guðmundar Einarssonar frá Miðdal við Stóru-Laxá í Hreppum verður endurgerður í upprunalegri mynd. Um samstarfsverkefni Veiðifélags Stóru-Laxár og leigutaka árinnar, Lax-ár, er að ræða, en kofinn hefur öðlast sess sem eitt helsta kennileiti árinnar í huga veiðimanna sem venja komur sínar á veiðisvæðið. Árni Baldursson er leigutaki Stóru-Laxár. „Þetta er svona gæluverkefni Veiðifélags Stóru-Laxár og okkar. Ætlunin er að gera húsið upp í sinni upprunalegu mynd, enda er þarna mikil saga og margar skemmtilegar minningar frá Veiðifélaginu FLUGAN. Þetta á að verða minnsta sögusafn á Íslandi; en líka lítil kaffistofa þar sem gestir og gangandi geta hellt sér upp á te eða kaffi á kamínu eins og var notuð í gamla daga. Þarna verður tækifæri til að skoða gamlar myndir og til að glugga í bækur, svo eitthvað sé nefnt. Veiðimenn geta svo hallað sér þarna í hvíldinni þegar þeir eru að veiða Hrunakrók og upplifað stemninguna á þessum fallega stað,“ segir Árni. Esther Guðjónsdóttir, formaður Veiðifélags Stóru-Laxár, segir að unnið verði að endurgerð veiðikofans í vetur, og vonir standi til að kofinn verði tilbúinn í vor. Þúsundþjalasmiðurinn Guðmundur Magnússon á Flúðum mun sjá um vinnuna, segir Esther; megnið af timbrinu er heilt þó gólfið sé ónýtt og bárujárnsklæðningin. „Allt verður notað aftur sem er heilt. Við munum flytja kofann og hann gerður upp á Flúðum, og svo verður farið með hann aftur á sinn stað í vor,“ segir Esther. Saga kofans er merkileg. Upphaflega var hann settur upp sem varðkofi við Ölfusárbrú í stríðinu en upp úr 1940 flutti Guðmundur frá Miðdal og félagar hans, húsið upp á Hrunakrók og nýttu það í mörg ár þegar haldið var til veiða. Húsið verður trúlega minnsta veiðihús landsins en tilkoma þess kærkomin veiðimönnum, helst fyrir þær sakir að um tíu kílómetrar eru í næsta veiðihús í Laxárdal. „Sagan um veiðina og húsið er stórskemmtileg og merkileg fyrir veiðimenn og verður tekin saman í vetur og gerð aðgengileg í kofanum næsta sumar,“ segir Esther. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Sjá meira