Innlent

Bólugrafnar drengjagrúppíur

Kjartan Guðmundsson skrifar
Ari Eldjárn og Þorsteinn Guðmundsson.
Ari Eldjárn og Þorsteinn Guðmundsson. mynd/ anton brink.
Ari Eldjárn og félagar í Mið-Íslandi byrja með nýjan þátt á Stöð 2 í næstu viku. Ari er mikill aðdáandi Fóstbræðraþáttanna sem skörtuðu Þorsteini Guðmundssyni og hófu göngu sína fyrir fimmtán árum.

Þekkist þið tveir grínistarnir?

Þorsteinn:

„Já. Ég hef fylgst með Mið-Íslandshópnum úr fjarlægð og man að ég sá ykkur fyrst koma fram á skemmtistaðnum Karamba við Laugaveg. Ég sá strax að þarna voru liðtækir menn sem kunnu uppistandsfagið en voru líka með eitthvað nýtt. Dóri DNA er mér sérstaklega minnisstæður þetta kvöld. Hann æddi um með bjórglas og einhverja miða sem hann hafði skrifað á og öskraði í sífellu: "Hvað er körrent? Hvað er körrent?" Svo bullaði hann bara um fréttir dagsins, sem mér fannst alveg frábært. Þetta sýndi frumlega hugsun og mikinn kjark, því hann hefur varla haft mikinn tíma til að undirbúa sig. Manstu eftir þessu, Ari?"

Ari:

„Já, mjög vel. Dóri talaði í fimmtíu mínútur."

Þorsteinn:

„Þetta var heilmikið stuð. Svo gerðum við saman auglýsingar fyrir Nova þar sem þú lékst Gary Duncan, knattspyrnumanninn frá Scunthorpe United."

Ari:

„Einmitt. Sá karakter var nú fundinn upp og auglýsingar samdar hér við eldhúsborðið þitt. Þær voru í þessum kennslumyndbandastíl sem þú hefur tileinkað þér. Menn sem segja fólki hvernig hlutirnir virka, hvort sem þeir vita það eða ekki."

Þorsteinn:

„Já, þetta YouTube-heilkenni sem er svo frábært. Þá var ég að læra á gítar á YouTube og þú sagðir mér að þú hefðir lært að spila fótbolta á YouTube, sem mér þótti hrikalega fyndið og ætlaði varla að trúa því. En svo sýndirðu mér einhvern tannlausan Breta sem var rosalega harður við börnin sem hann var að kenna knattspyrnu."

Ari:

„Þessar auglýsingar blésu miklu lífi í vináttu okkar. En við kynntumst reyndar fyrst árið 2006 þegar við sömdum Áramótaskaupið saman, ásamt fleirum."

Þorsteinn:

„Alveg rétt. Ég var búinn að gleyma því."

Ari:

"Og svo leyfðirðu mér að leika í bíómyndinni sem þú skrifaðir handritið að og lékst aðalhlutverkið í, Okkar eigin Osló."

Þorsteinn:

„Já. Ég var búinn að steingleyma því líka."

Ari:

„Það er mitt fyrsta og hingað til eina hlutverk í kvikmynd. Það var stórkostlegt að eyða fjórum dögum í að bulla með þér og Ladda. Besta djobb í heimi."

Gerðu hlé á bekkjarpartíinu

Ari, varst þú aðdáandi Fóstbræðra á yngri árum?

Ari:

„Já mjög mikill aðdáandi. Ég var sextán ára þegar Fóstbræður hófu göngu sína og sautján þegar þú birtist mér fyrst í seríu númer tvö. Á fullkomnum aldri. Í 5. bekk í MR vorum við með bekkjarpartí og allir voru vel hressir, en ég man að það var gert hlé á öllu til að horfa á Fóstbræðraþátt sem var í sjónvarpinu. Þá sá ég í fyrsta skipti sketsinn með sértrúarsöfnuðinum sem Benedikt Erlingsson leiðir. "Ég drap föður minn og ég nauðgaði móður minni en Guð MUN fyrirgefa mér!" Ég átti erfitt með að skilja allt því ég var orðinn svo drukkinn, en við hlógum og hlógum."

Þorsteinn:

„Það eru helst strákar á aldrinum 12 til 23 ára sem eru móttækilegir fyrir nýjum grínþáttum. Þeir eru grúppíurnar okkar, þessir bólugröfnu drengir sem vilja láta taka mynd af sér með okkur á iPhone-inn sinn. En þættirnir mættu mikilli andstöðu hjá stórum hluta almennings. Við í Fóstbræðrum vorum til dæmis hötuð af símastelpunum á Stöð 2, því þær vissu að þær fengju tvö hundruð kvörtunarsímtöl í hvert skipti. En svo snerist þetta við á einhvern undarlegan hátt. Þættirnir hættu að verða költ og urðu dálítið vinsælir. En ég held að margar aðrar grínþáttaraðir hafi fengið meira áhorf, til dæmis Stelpurnar og Svínasúpan. Þannig er það oft með eitthvað svona nýtt."

Ari:

„Jón Gnarr sagði mér eitt sinn að einna mest hefði verið kvartað yfir atriðinu "Hvað á að gera við afa?", sem fjallaði um mann sem vill ekki setja afa sinn á elliheimili og ákveður frekar að skjóta hann. Svo hættir maðurinn við á ögurstundu og setur afa á elliheimili, en kvartanirnar snerust allar um að það væri ljótt að sýna atriði þar sem gamall maður væri skotinn. En hann var ekkert skotinn. Það var eins og margir hefðu alveg misst af punktinum í atriðinu. Nú til dags eru auðvitað miklu fleiri leiðir til að tjá ónægju sína með allt, Facebook, vefsíður, spjallvefir og svo mætti lengi telja."

Þorsteinn:

„Þá var það bara Velvakandi."

Ari:

„Já, og Þjóðarsálin á Rás 2, fyrir utan að hringja beint í Stöð 2 og skammast. En Fóstbræðraþættirnir höfðu mikil áhrif á mig. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á gríni en ætlaði samt alltaf að vera kvikmyndaleikstjóri og gera einhverjar skandinavískar og þunglyndar bíómyndir. Líklega hef ég alltaf verið uppistandari í eðli mínu en var rosalega seinn að fatta að færa það upp á svið. Ég var 28 ára þegar ég tróð fyrst upp og þá var ég í raun ekki að hegða mér neitt öðruvísi en ég gerði í partíum."

Þorsteinn:

„Fyrir utan að þú fékkst borgað fyrir það."

Ari:

„Þetta var reyndar algjör sjálfboðavinna til að byrja með, en í dag er ég svo gæfusamur að geta lifað á því að skrifa og koma fram og vonandi endist það sem lengst. Ég vann áður á frábærri auglýsingastofu sem heitir Jónsson og Le?Macks og þegar ég byrjaði að skemmta á fullu fékk ég að vera áfram með aðstöðu þar.

Allir þar hvöttu mig til dáða og hafa hjálpað mér margvíslega. Til að mynda fékk fékk ég ómetanlegan stuðning frá eigendum og starfsmönnum stofunnar þegar ég gerði litla grínplötu fyrir jólin 2009. Ég var alltaf hálfgerður vinnustaðagrínisti þar. Varst þú ekki svoleiðis líka?"

Þorsteinn:

„Svona af og til, jú. Ég er með smá athyglisbrest og þegar ég finn að ég er að tapa athyglinni þá byrja ég stundum með eitthvað rugl til að ná henni aftur. Þetta hófst þegar ég var í MR og leiddist stundum í tímum. Þá byrjaði ég að fela mig bak við gardínur og það endaði þannig að ég var heilan tíma bak við gardínur. Svo gerði ég samning við einn kennarann um að fá að glósa á töfluna hjá honum því ég hefði sofnað yfir bókunum. Ég skil þessa tilfinningu mjög vel."

Fékk ógeð á sketsaþáttum

Hver er helsti munurinn á að skrifa fyrir sketsaþætti annars vegar og uppistand hins vegar?

Ari:

„Það eru milljón sinnum fleiri ákvarðanatökur í sketsaþáttum, meira um millibilsástand, lengra ferli og þú sérð afraksturinn af því sem þú skrifar kannski ekki fyrr en mörgum mánuðum síðar. Þetta er að minnsta kosti mín reynsla. Í uppistandi ertu sífellt að prófa eitthvað nýtt og henda út gömlu. Og þú veist strax hvort eitthvað virkar eða ekki og getur þá lagað eða hent út. Ef eitthvað virkar ekki í sjónvarpi veistu það ekki nema af afspurn. Ég vildi óska þess að ég gæti setið heima hjá hverjum einasta manni sem horfir á Mið-Íslands þættina og horft á hann horfa."

Þorsteinn:

„Já, og útskýra hvers vegna atriðin eru fyndin. Ég hef ekki séð Fóstbræður síðan þættirnir voru sendir út á sínum tíma og hef engan áhuga á því. Við unnum mjög hratt og kannski voru vinnubrögðin okkar voðalega óvönduð."

Ari:

„En er það ekki kostur að geta tekið hraðar ákvarðanir?"

Þorsteinn:

„Jú, kannski. En ég fékk ógeð á því að skrifa sketsaþætti. Fékk ógeð á að vinna með þetta form. Þetta er dálítið eins og að yrkja ljóð og semja alltaf ferskeytlur aftur og aftur. Fyrr eða síðar vill maður gera eitthvað annað, smásögubók eða eitthvað slíkt."

Ari:

„Það er mikil hætta á að endurtaka sig ef maður er ekki duglegur að finna nýjar nálganir á hlutina. Sjálfur á ég til að vera dálítið takmarkaður. Ég er góður í að skrifa ákveðna tegund af sketsum en lakari í öðrum. Flestir sketsarnir mínir eru bíólegir. Ég er svona form-pervert. En svo er svo mikið af góðum sketsum sem ganga bara út á tvo menn að tala. Ég væri til í að gera meira af því."

Þorsteinn:

„Já, það er mikið til í því. Þannig sketsar eiga til að lifa lengi. Einn skets úr Fóstbræðrum sem fór lágt á sínum tíma en hefur lifað er Maður í lyftu, þar sem Jón Gnarr var fastur í lyftu með Benedikt Erlingssyni og vill sýna honum gyllinæð, læknamistök og hár sem vex út úr vörtu. Þessi innilokunarkennd virkar vel."

Ari:

„Já, og svo er skítlétt að taka svona atriði. Bara redda lyftu og þá er það komið. Fullkominn skets."

Sköpunargleðin situr eftir

Þorsteinn, ertu spenntur fyrir nýju Mið-Íslands þáttunum?

Þorsteinn:

„Já, það er ég. Mín reynsla er sú að mínir uppáhaldsþættir eru þeir sem ég kveiki ekki á alveg strax, svo ég vona að fyrsti Mið-Íslands þátturinn veiti mér smá mótspyrnu. Ef mér finnst fyrsti þátturinn rosa góður er ekkert víst að ég nenni að horfa á þann næsta."

Ari:

„Þú hefur örugglega gaman af súrari hlutanum af þáttunum. Það er fullt af hefðbundnu gríni í þeim en annað sem er mjög óhefðbundið og skrýtið. Ragnar Hansson, leikstjórinn sem skrifar þættina með okkur, er mjög metnaðarfullur og kemur með nýja vídd inn í efnið okkar. Það er ekkert uppistand, engar eftirhermur og alls ekki "körrent" heldur frekar hliðstæður veruleiki."

Þorsteinn:

„Þættirnir eru auglýstir þannig að nú fái Mið-Ísland tækifæri lífs síns!" Hvað meina þeir með þessu? Hefur ekkert merkilegra gerst í ykkar lífi en að fá að gera þætti á Stöð 2? Er verið að stilla ykkur upp við vegg og segja ykkur að gjöra svo vel að standa ykkur?"

Ari:

„Það er verið að segja ákveðna sögu með þessu, ekki endilega úr okkar veruleika."

Þorsteinn:

„Já, þetta vekur athygli. En ef mér leyfist að tala eins og gamall karl í bransanum, þá vona ég að Mið-Ísland fylgi sinni sannfæringu eins og við gerðum í Fóstbræðrum. Það er vel hægt að skrifa fyrir aðra en það verður aldrei sannfærandi. Það er kikk að fá viðbrögð og nýjabrumið er skemmtilegt, en það hverfur og sköpunargleðin er það sem situr eftir þegar fram í sækir."

Ari:

„Algjörlega. Það er frábær tilfinning að fá hugmynd og búa eitthvað til. Pabbi minn á sérstaka bókahillu sem í eru allar bækurnar sem hann hefur skrifað og þýtt. Það er svo gaman að sjá hversu mikill tími liggur að baki þessarar litlu hillu. Það finnst mér fallegt."

Þorsteinn:

„En ég er viss um að pabbi þinn er að hugsa um næstu bók."

Ari:

„Já, hann er byrjaður að skrifa hana."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×