Haldið sofandi í öndunarvél - með sár á brjósti, hálsi og kviðarholi Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 5. mars 2012 18:33
Rúmlega sextugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að honum var sýnt banatilræði á lögmannskrifstofu í dag. Hann hlaut sár á brjóst, háls og kviðarhol. Það var á tíunda tímanum í morgun sem að lögregla fékk tilkynningu um að maður hefði komið á lögmannskrifstofu í Lágmúla, vopnaður hnífi, og veist að starfsmanni. Maðurinn vildi fá að tala við einhvern sem hefði með innheimtumál að gera á skrifstofu Lagastoða. Lögmannskrifstofan sér um að innheimta eitt af lánum hans. Hann réðst síðan á starfsmann og stakk hann með hnífi nokkrum sinnum. Samstarfsfélagi hans kom honum til bjargar og skarst sá á fæti. Árásarmaðurinn var yfirbugaður og handtekinn á staðnum. Skrifstofunni var strax lokað af og rannsökuðu lögreglumenn vettvanginn. Lögregla segir manninn hvorki hafa verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Maðurinn sem ráðist var á er rúmlega sextugur. Hann var fluttur á slysadeild en strax var ljóst að hann þyrfit að gangast undir umfangsmikla aðgerð. Maðurinn var með sár á brjósti, hálsi og kviðarholi. Hann er nú á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem honum er haldið sofandi. Maðurinn var yfirheyrður í dag en lögð verður fram krafa um gæsluvarðahald yfir honum á morgun. Á Vísi fyrr í dag var sagt frá því að maðurinn væri með mótórhjól á lánum frá SP-fjármögnun. Það mun ekki vera rétt.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Sjá meira