Innlent

Outlaws málinu frestað - aðalvitnið finnst ekki

Outlaws menn leiddir fyrir héraðsdóm í hlekkjum.
Outlaws menn leiddir fyrir héraðsdóm í hlekkjum. Mynd/Sigurjón
Aðalmeðferð hefur verið frestað í skotárásarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps þegar þeir skutu á bifreið karlmanns í Grafarvoginum í nóvember á síðasta ári. Aðalvitnið, maðurinn sem skotið var á í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember í fyrra, finnst ekki þannig það er illmögulegt að framhalda réttarhöldunum. Þetta kom fram á vef RÚV.

Meintu skotmennirnir neita allir sök í málinu. Þá hafa vitni verið treg til þess að lýsa atburðinum. Sumir hafa borið við minnileysi. Mennirnir eru hluti af vélhjólagenginu Outlaws.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×