Innlent

Enginn slasaðist illa í rútuslysi í Oddskarði

Enginn slasaðist illa þegar rúta með átta farþegum fór út af veginum í Oddskarði rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir á Norðfirði voru kallaðar út og fluttu björgunarsveitarmenn farþegana á heilsugæsluna á Eskifirði.

Veður er vont á svæðinu en þar er fljúgandi hálka, skafrenningur og afar hvasst. Farþegarnir voru starfsmenn Alcoa-Fjarðaáls.


Tengdar fréttir

Rútuslys í Oddskarði

Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir á Norðfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í kvöld þegar lítil rúta fór útaf veginum í Oddskarði með átta manns innanborðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×