Innlent

Rútuslys í Oddskarði

Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir á Norðfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í kvöld þegar lítil rúta fór útaf veginum í Oddskarði með átta manns innanborðs.

Einhver meiðsli urðu á fólkinu í rútunni en ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.

Björgunarsveitir eru nú að flytja fólkið úr skarðinu. Veður er mjög vont á svæðinu; úrkoma, frost og töluverður vindur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×