Bíða oft lengi eftir greiningu Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. febrúar 2012 19:45
Ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu segir langan tíma oft líða frá krabbameinssjúklingar byrja að leita til lækna þar til þeir greinast. Mikilvægt sé að læknar séu vakandi fyrir því að leita að krabbameini en þriðji hver Íslendingur greinist með það einhverntímann á lífsleiðinni. Rúmlega sextug sem greindist með alvarlegt krabbamein fyrir sex árum sagði sögu sína í fréttum okkar í gær. Hún hafði leitað til lækna í hátt í fjögur ár vegna slappleika áður en krabbameinið greindist. Hún var hvorki send í blóðprufur né rannsóknir fyrstu tvö árin og sagt að rekja mætti líðan hennar til breytingarskeiðsins. Þegar hún greindist þá var hún með krabbamein í nýrum, lungum, hálsi og víðar. Hjá Krabbmeinsfélaginu þekkja menn margar sögur af fólki sem leitað hafði í lengri tíma til lækna með svipuð einkenni áður en það greindist með krabbamein. „Það er oft að það er búið að vera þreytt lengi og finnur til slappleika og kannski svima og svona eins og rekja má í blóðleysi eða eitthvað þannig," segir Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu. Hún segir fólkið þó oft vera án verkja. „Ég held að það sé miklu algengara að fólk sé ekki farið að finna fyrir verkjum," segir hún. Flestir hafi yfirleitt leitað til lækna á heilsugæslum en ekki sérfræðinga. „Fólk byrjar hjá heilsugæslustöðvum, hjá heimilislæknum, síðan ef það finnur einhver einkenni á ákveðnum stöðum í líkamanum þá fer það til sérfræðilæknis sem er kannski sérfræðingur í þeim einkennum." Þá segir hún oft virðast sem svo að langur tími líði áður en fólk er sent í ítarlegar rannsóknir. „Maður spur sig, afhverju fá sumir rannsóknir en ekki aðrir?" Hún segir mikilvægt að læknar séu vakandi fyrir því að leita að krabbameini. „Það ætti nú að hvarfla að þeim af því það er þriðji hver Íslendingur sem að greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni."
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira