Fréttaskýring: Ármann valdamestur sjálfstæðismanna Magnús Halldórsson skrifar 10. febrúar 2012 13:30 Ármann Kr. Ólafsson, verðandi bæjarstjóri í Kópavogi, sést hér við hlið Rannveigar Ásgeirsdóttur þegar nýr meirihluti í Kópavogi var kynntur fyrr í vikunni. Mynd/VILHELM
Á þriðjudaginn 14. febrúar mun Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, verða formlega bæjarstjóri í sveitarfélaginu, sem er hið næst stærsta á landinu á eftir Reykjavík með 30.779 íbúa samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Ármann verður með þessu valdamesti kjörni fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu, þegar mið er tekið af fjölda íbúa sveitarfélaga þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er við stýrið og þeirri staðreynd að flokkurinn er ekki við stjórnartaumana í landsmálunum.Misstu völdin Eftir þingkosningarnar 2009 og sveitarstjórnarkosningarnar 2010 missti flokkurinn völdin víða. Svo dæmi séu nefnd, þá missti flokkurinn ítökin í Kópavogi, Besti flokkurinn náði Reykjavíkurborg með ævintýralegum kosningasigri og á Akureyri missti Sjálfstæðisflokkurinn völdin eftir mikinn ósigur í kosningum, fékk aðeins einn bæjarfulltrúa af ellefu í bæjarstjórn. Í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn er í stjórnarandstöðu á Alþingi, með ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna við stýrið, eru helstu pólitísku ítök Sjálfstæðisflokksins nú í sveitarstjórnum. Þar er fyrrnefnd staða í Kópavogi sem Ármann mun gegna, sú valdamesta þegar mið er tekið af íbúafjölda.Árni næstur Þegar horft er til þeirra næstu fjögurra embætta sem á eftir Ármanni koma er það Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þar sem íbúar eru tæplega 14 þúsund, sem er næstur í röðinni. Þar eru sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta, sjö bæjarfulltrúa af ellefu. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, þar sem flokkurinn er með fimm bæjarfulltrúa af sjö, er einnig meðal valdamestu manna flokksins að teknu tilliti til íbúafjölda í sveitarfélaginu. Gunnar er reyndar ekki einn af kjörnum bæjarfulltrúum, en hann gegnir þó stöðu sinni í umboði þess trausta meirihluta sem flokkurinn hefur í bænum, þar sem íbúar eru tæplega 11 þúsund. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum, kemur þar á eftir en íbúar í bænum eru ríflega 8.600. Í Árborg er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta, fimm bæjarfulltrú af níu, en íbúar í Árborg voru ríflega 7.800 í lok árs í fyrra. Framkvæmdastjóri sveitarfélagsins var ráðinn undir ópólitískum formerkjum en Ásta Stefánsdóttir gegnir því embætti.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira