Sex þúsund sóttu um niðurfellingu skulda 13. febrúar 2012 18:35
Heildarkostnaður Íbúðalánasjóðs vegna 110% leiðarinnar er um 7,4 milljarðar króna. Um sex þúsund umsóknir bárust um niðurfellingu á skuldum, sem er um þriðjungi minna en áætlað var í upphafi. Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs segir vinnuna hafa gengið vel, en viðvarandi mikil verðbólga sé mikið áhyggjuefni. Eftir að samkomulag náðist um aðgerðir fyrir skuldug heimili um hina svokölluðu 110 prósent leið, þar sem skuldir eru lækkaðar niður í 110 prósent af virði eignar, hefur Íbúðalánasjóður unnið að því að fylgja úrræðinu eftir. Nú er að verða komin endanleg mynd á það hversu mikið sjóðurinn þarf að afskrifa vegna þessa úrræðis og hversu margir njóta góðs af því. Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að um 6.000 umsóknir hafi borist um skuldaniðurfellingu. Um helmingur af þessum umsóknum hefur verið samþykktur, sem þýðir að um 3.000 skuldarar hafa fengið niðurfellingu. Í heildina hafa um 7,4 milljarðar verið afskrifaðir vegna þess sem gerir um 2,4 milljarðar króna að meðaltali á hverja samþykkta umsókn. Íslenska ríkið hefur þegar lagt Íbúðalánasjóði til 22 milljarða til þess að mæta erfiðleikum viðskiptavina sjóðsins. Gert var ráð fyrir að mun fleiri myndu frá afskrift skulda heldur en raunin varð. En staða leigufélaga og fyrirtækja, sem eru viðskiptavinir sjóðsins er mun verri en reiknað var með. Kostnaður vegna þeirra var áætlaður um sjö milljarðar en reyndin er nærri fjórtán milljarðar. Sigurður segir viðvarandi verðbólgu vera áhyggjuefni, bæði fyrir skuldara og aðra. Skuldir margra þeirra sem þegar hafa fengið lækkun skulda hafa fyrir vikið hækkað. Sigurður segir þó að það sem skipti máli sé að launaþróun verði jákvæðari umfram verðbólgu. Þar skipti sköpum að efnahagslífið almennt rétti úr kútnum.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Sjá meira