Sakargiftir voru fyrndar Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. febrúar 2012 11:38 Sigríður Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari.
Ástæða þess að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari ákvað að fella niður sakamál gegn lögreglunni eftir að hún fór með myndatökumenn Kastljóss í húsleit í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu var fyrning sakargiftanna. Sigríður segir að Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hæstaréttarlögmanni hefði átt að vera þetta ljóst hefði hann lesið bréf ríkissaksóknara frá 27. janúar síðastliðinn. Forsaga málsins er sú að lögreglan fór með myndatökumann Kastljóss í húsleit í Vatnsendahverfi fyrir fáeinum misserum. Húsráðendur voru ekki heima. Þeir voru ósáttir við myndatökuna, þótt myndefnið hafi aldrei verið sýnt, og tölu að lögreglumenn hefðu brotið reglur og þegnskylduákvæði lögreglulaga. Þeim voru dæmdar bætur í héraðsdómi í gær en lögmaður þeirra er afar ósáttur við að sakamálahluti málsins hafi verið látinn niður falla. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir að í fyrrnefndu bréfi komi skýrt fram að ríkissaksóknari taldi, líkt og héraðsdómur, að samþykki húsráðanda fyrir myndatöku hafi verið nauðsynlegt og þar með hefði það verið andstætt ákvæði 132. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að heimila utanaðkomandi aðila myndatökur á heimili kærenda. Sigríður segir að embætti Ríkissaksóknara muni fjalla um beiðni lögmannsins um endurupptöku málsins og telji af þeim ástæðum rétt að tjá sig ekki um framkomnar athugasemdir lögmannsins á þessu stigi. Hún segir embættið leggja almennt til grundvallar að mál sem varði kærur á hendur lögreglu fái faglega og vandaða umfjöllun hjá embættinu með sama hætti og önnur sakamál. Embættið muni íhuga hvort rétt sé á síðari stigum að koma á framfæri athugasemdum á opinberum vettvangi vegna ummæla lögmannsins.
Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Erlent Fleiri fréttir Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Sjá meira