Vill koma til móts við þá sem tóku verðtryggð lán 16. febrúar 2012 12:15
Munurinn á þeim sem tók verðtryggð íslensk lán - og hinum sem tóku gengislán er orðinn hrópandi, segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Hann segir óhjákvæmilegt að koma til móts við fólk sem keypti í eignabólunni og situr uppi með verðbólguskot á lánum sínum og minni kaupmátt. Efnahags- og viðskiptanefnd hefur að undanförnu farið yfir það hvernig megi draga úr vægi verðtryggingar í framtíðinni. Að sögn Helga Hjörvars, formanns nefndarinnar verður það skoðað hvort og hvernig það megi koma til móts við þá sem eru með verðtryggð lán, í ljósi niðurstöðu Hæstarréttar varðandi gengislánin. „Það er ljóst að það verður að koma til móts við fólkið sem varð fyrir þremur áföllum í senn. Þau keyptu þegar fasteignaverðið var hátt, svo kom verðbólguskot í kjölfarið og svo tók hópurinn á sig kaupmáttarskerðingu í beinu framhaldi," segir Helgi og bætir við að munurinn á hópunum, eftir ívilnanir sem lántakendur gengistryggðra lána hafa fengið, sé hrópandi. Helgi segist ekki viss með hvaða hætti það yrði komið til móts við þá sem tóku verðtryggð lán. Það þurfi að skoða vel. Upplýsingafulltrúi umboðsmanns skuldara, Svanborg Sigmarsdóttir, sagði svo í hádegisfréttum að niðurstaða Hæstaréttar breytti miklu. „Þetta gæti haft áhrif á þá sem eru með samninga að því leiti að skuldastaðan gæti minnkað," sagði Svanborg.
Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Leitar eftir stuðningi almennings vegna einstaks dómsmáls Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent Fleiri fréttir Leitar eftir stuðningi almennings vegna einstaks dómsmáls Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land „Planið“ sé byrjað að virka Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ „Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni „Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Hvalirnir skornir og lögreglan með áhyggjur af hraðakstri Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Sjá meira