Ökufantur á flótta fær tæplega sjö milljónir úr tryggingunum 16. febrúar 2012 16:49 Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Hæstiréttur lækkaði bætur manns lítillega sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af vélhjóli sínu þar sem lögreglan veitti honum eftirför. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem dæmdi tryggingafélagið Vörð til þess að greiða manninum 7,3 milljónir króna út af slysinu og þurfti hann því að bera helminginn af skaðanum, en upphaflega áttu bæturnar að vera rúmar 14 milljónir króna. Maðurinn féll af hjóli sínu sumarið 2007 þegar hann ók langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Lögreglan veitti manninum og félaga hans eftirför 30 kílómetra leið. Þar af voru mennirnir á ofsahraða 20 kílómetra vegkafla. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að mennirnir hafi ekið hjólum sínum frá Kambabrún í átt til Reykjavíkur um Suðurlandsveg. Þannig taldi Magnús Þór Jónsson prófessor, sem vann hraðaútreikninga fyrir lögreglu, að ætlaður meðalhraði bifhjólanna frá radarmælingum frá Kambabrún að Breiðholtsbraut hafi verið 187 kílómetrar á klukkustund. Á stærstum hluta leiðarinnar, þ.e. frá Kambabrún að Hólmsá hafi meðalhraðinn verið 196 kílómetrar á klukkustund. Á akstri sínum hunsuðu mennirnir ítrekað stöðvunarmerki og vegartálma lögreglu. Viðurkennt er að maðurinn hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi. En vegna þess að maðurinn var ekki undir áhrifum fíkniefna eða áfengis, þá er tryggingafélaginu engu að síður skylt að greiða manninum hluta af bótunum. Hæstiréttur staðfestir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur en lækkar kröfuna um rúma hálfa milljón. Ástæðan er sú að gagnáfrýjandi lækkaði kröfu sína fyrir Hæstarétti vegna leiðréttingar á útreikningi hennar. Maðurinn fær því 6,6 milljónir í bætur.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira