Innlent

Ekkert skyggni á Vesturlandsvegi - ökumenn varaðir við

Lögregla vekur athygli á því að mjög blint er á Vesturlandsvegi, milli Mosfellsbæjar og Hvalfjarðarganga. Að sögn lögreglu hafa ökumenn lent í vandræðum og ekið út af. Búið er að kalla eftir aðstoð björgunarsveita. Að sögn lögreglu er ekki um ófærð að ræða, heldur er skyggnið einfaldlega ekkert.

Ökumenn eru því hvattir til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu, eins og er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×