Innlent

Töluvert tjón í eldsvoða á Skólavörðustíg

Eldur kviknaði í eldhúsi veitingahússins Sjávargrillsins á horni Skólavörðustígs og Óðinsgötu um klukkan hálf tvö í nótt.

Allt vakthafandi slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang, enda timburhús í grenndinni.

Reykur barst inn í íbúðir í húsi við hliðina, sem voru rýmdar. Engum varð þó meint af reyknum.

Slökkvistarf og reykræsting tóku um það bil klukkustund, en töluvert tjón varð á staðnum. Þar logaði meðal annars á milli þilja, sem þurfti að rífa. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×