Ógnaði björgunarsveitarmanni sem þurfti að flýja inn í bíl 26. janúar 2012 12:14 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Ófærðin fer illa í suma sem sannaðist í Reykjanesbæ í morgun þegar ökumaður veittist að björgunarsveitarmanni og ógnaði honum. Björgunarsveitarmaðurinn sá þann kost vænstan að flýja inn í bíl og læsa að sér og þá barði maðurinn í rúðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Að lokum var lögregla kölluð til og skakkaði hún leikinn. Björgunarsveitarmaðurinn var að manna lokunarpóst við Fitjar en Reykjanesbrautin var meira og minna lokuð í allan morgun. Snjóplógur lagði síðan af stað eftir Reykjanesbrautinni og fékk Flugrútan að fylgja í kjölfarið ásamt fleiri aðilum sem lögreglan mat sem svo að þyrftu nauðsynilega að komast til Reykjavíkur. Öðrum var gert að bíða og það sætti einn ökumaður sig engan veginn við og ógnaði þá björgunarsveitarmanninum. „Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma þeim tilmælum á framfæri að fólk sýni skilning á störfum björgunarsveitafólks sem er að aðstoða samborgara sína í erfiðum aðstæðum, endurgjaldslaust, og ógni ekki öryggi þess á meðan það reynir að tryggja öryggi annarra." Hægt er að horfa á myndband hér fyrir ofan sem myndatökumaður Stöðvar 2 tók af ferð bílalestarinnar frá Reykjanesbæ til Reykjavíkur í nótt og í morgun.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Sjá meira