Innlent

Stunginn í bakið að ástæðulausu

Myndin er sviðsett.
Myndin er sviðsett.
Karlmaður á þrítugsaldri kom á slysadeild Fossvogi um miðnætti og kvaðst hafa verið stunginn með hnífi í bakið fyrir utan verslun í Glæsibæ.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gat maðurinn lýst klæðnaði gerandans en virðist ekki hafa þekkt hnífamanninn. Árásin er talin hafa verið tilefnislaus.

Maðurinn fékk að fara heim að lokinni aðhlynningu en skurðurinn mun ekki hafa verið djúpur. Gerandinn er ófundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×