Innlent

Fimm innbrot á höfuðborgarsvæðinu

Tilkynnt var um fimm innbrot á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt.

Fyrst var maður handtekinn með þýfi á sér eftir innbrot í bíla við Brautarholt í Reykjavík. Síðan var brotist inn í íþróttavöruverslun í Grafarholti, hárgreiðslustofu í Kópavogi, skyndibitastað í Garðabæ og samskonar stað í Hafnarfirði.

Ekki er enn ljóst hverju var stolið í þessum innbortum, en þjófarnir eru ófundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×