Betra að bæjarstórinn sé pólitískur Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. janúar 2012 11:49 Guðríður Arnardóttir er oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs.
Meirihluti bæjarstjórnarinnar í Kópavogi er einhuga um brotthvarf Guðrúnar Pálsdóttur úr stóli bæjarstjóra í Kópavogi, segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar. Rætt var við Guðrúnu um starfslok hennar á föstudaginn. Aðspurð segir Guðríður ekkert liggja fyrir um næsta bæjarstjóra. „Það liggur alveg fyrir og hefur legið fyrir lengi að það er okkar skoðun að pólitískur bæjarstjóri sé betri kostur en ópólitískur," segir Guðríður og bætir við að ýmsar forsendur liggi að baki þessari skoðun, sem Vinstri grænir séu raunar sammála Samfylkingunni um. „Ef bæjarstjórinn er pólitískur er ekkert óeðlilegt við að það sé forystumaður í stærsta flokknum," segir Guðríður ennfremur, þegar hún er spurð að því hvort hún muni hugsanlega taka við bæjarstjórastólnum. Hún segir þó að þetta sé ekki ófrávíkjanleg krafa af hálfu Samfylkingarinnar. Guðríður segir fréttir þess efnis að til standi að taka Framsóknarflokkinn inn í meirihlutasamstarfið ekki eiga við rök að styðjast. „Við höfum bara lagt á það mikla áherslu að þessi meirihluti starfi óbreyttur út kjörtímabilið," segir Guðríður. Markmiðið sé að koma til framkvæmda þeim verkefnum sem flokkarnir sameinuðust um að vinna að eftir síðustu kosningar. „Við erum tilbúin að leggja mikið á okkur svo að svo verði," segir Guðríður.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira