Innlent

Síbrotamaður í átján mánaða fangelsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarni mun væntanlega dúsa á Litla Hrauni á næstunni.
Bjarni mun væntanlega dúsa á Litla Hrauni á næstunni.
Síbrotamaður að nafni Bjarni Leifur Pétursson var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavikur í dag. Hann er meðal annars dæmdur fyrir vopnalagabrot, með því að hafa haldið hnífi á lofti á veitingastaðnum Monte Carlo í mars í fyrra, einnig fyrir líkamsárás að Baldursgötu í ágúst í hitteðfyrra, bílþjófnað og að hafa tekið út vörur í verslun á nafni annars manns. Bjarni á að baki 44 dóma fyrir brot, sem eru í flestum tilfellum hegningarlagabrot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×